Náttúrufræðingurinn - 1998, Qupperneq 64
Snæfellsblað
Glettings
Komið er út veglegt sérblað af tímaritinu
Glettingi og er það tileinkað fyrirhuguðum
virkjunarsvæðum norðaustan Vatnajökuls.
Fjallað er um náttúru svæðanna í máli og
myndum, einkum um fjalladrottninguna
Snæfell og öræfin umhverfis hana, Eyja-
bakka og Vesturöræfi, um landslag, jarð-
sögu, gróður og dýralíf. Einnig er fjallað um
áætlaðar virkjanir og áhrif þeirra á náttúrufar
og landnýtingu, um skipulag á hálendinu og
aðgerðir til verndunar. Nokkur félög og
stofnanir kynna sjónarmið sín, þeirra á
meðal Landsvirkjun og talsmenn álvers við
Reyðarfjörð.
Ritfregn
Markmið blaðsins er að upplýsa lesendur
um þau náttúruverðmæti sem þarna eru í
húfi og fyrirhugaðar framkvæmdir svo hver
og einn geti gert upp hug sinn og tekið
afstöðu á eigin spýtur.
Meðal höfunda efnis í Glettingi eru Hjör-
leifur Guttormsson, Armann Höskuldsson,
Páll Imsland, Kristinn Haukur Skarphéðins-
son, Oddur Sigurðsson, Skarphéðinn G.
Þórisson og Helgi Hallgrímsson, Anna Dóra
Sæþórsdóttir, Ragnheiður Olafsdóttir, Helgi
Bjamason, Magnús Asgeirsson, Rannveig
Árnadóttir og Pétur Gunnarsson.
Er Snæfell virkt eldf/all?
í grein Ármanns og Páls: „Snœfell - eldfjal!
á gosbelti framtíðar" er yfirlit yfir bergfræði
og myndunarsögu Snæfells sem lengi hefur
verið talið útkulnað. Niðurstaða þeirra er sú
að fjallið sé ennþá virkt og hafi síðast gosið
fyrir um það bil 10 þúsund árum og jafnvel
síðar. Gos í Snæfelli gæti orsakað jökul- og
aurhlaup, auk hraunrennslis og gjósku.
Merkileg er einnig sú tilgáta þeirra að Snæ-
fell muni færast yfir möttulstrókinn og verða
á landreks-gosbelti í framtíðinni.
Ritstjóri Glettings er Steinunn Ásmunds-
dóttir skáld. Blaðið er 92 bls. með 65 lit-
rnyndum og um 20 litprentuðum kortum og
skýringarmyndum.
„ Glettingur- tímarit um austfirsk mál-
efiti" hefur verið gefið út á Egilsstöðum síðan
1991. Útgelandi er Útgáfufélag Glettings.
Áskriftarverð er 1.950 krónur. Öll ritstjórnar-
vinna er lögð fram án endurgjalds og ritlaun
eru ekki greidd. Nýir áskrifendur geta snúið
sér til Sigurjóns Bjarnasonar, Selási 9, Egils-
stöðum. Snæfellsblaðið er til sölu í helstu
bókabúðum landsins og kostar kr. 1.000.
Snœfell úr suðvestri. Ljósm. Oddur Sigurðsson.
142