Náttúrufræðingurinn - 1995, Page 11
reyndar mjög lítið og sendir mest 1200 bita
á sekúndu, mun minna en algeng mótöld til
heimilisnota. Loftnetið er auk þess ekki
mjög stefnuvirkt og styrkur þess lítill og
því þarf í reynd að nota mun lægri sendi-
tíðni til að tryggja að sendingarnar skili sér
óbrenglaðar.
Þessi vandræði með loftnetið þýddu að
endurskipuleggja varð alla gagnameð-
höndlun. Gafst raunar nægur tími til þessa
þar sem bilunin uppgötvaðist rúmum 4
árum áður en Galíleó átti að koma til
Júpíters. Nýr hugbúnaður var hannaður til
þess að geyma mætli mæligögn um borð,
þjappa þeim saman og senda þau svo til
jarðar þegar best hentaði. Þá var rykið
dustað af nokkruin eldri gerðurn móttöku-
loftneta (6. mynd) á jörðu niðri og þau stillt
inn á samband við minna loftnet flaugar-
innar.
Þegar þetta er ritað er því allt til reiðu og
undirbúningur undir heimsóknina á loka-
stigi. Vonast menn til að ná til jarðar öllum
mælingum kannans, öllum mælingum
Galíleós á segulsviði Júpíters yfir tveggja
ára tfmabil, um 1500 myndum af Galfleó-
tunglunum auk fjögurra minni tungla og af
reikistjörnunni sjálfri. Þá má einnig nefna
öll mæligögn úr 11 ferðum nærri Galíleó-
tunglunum. Það verður því þrátt fyrir allt
ekki svo lítið sem vísindamenn hafa úr að
moða að leiðangrinum loknum.
Auk neðangreindra heimilda er megnið af upp-
lýsingunum sem hér er getið fengið af heima-
síðu Galíleós
http://www.jpl.nasa.gov/galileo
Að auki verður opið hús til loka janúar 1996 á
heimasíðunni
http://quest.arc.nasa.gov/jupiter.html
þar sem kennarar og nemendur á öllum skóla-
stigum geta fylgst með mælingunum og jafnvel
sent fyrirspurnir til vísindamannanna sem að
rannsóknunum vinna.
■ HEIMILDIR
Beatty, J.K. Galileo Calls on Gaspra. Sky &
Telescope, október 1991.
Beatty, J.K. Glimpses From Galileo. Sky &
Telescope, september 1992.
Beatty, J.K. The Long Road to Jupiter. Sky &
Telescope, apríl 1993.
Beatty, J.K. Ida & Company. Sky & Telscope,
janúar 1995.
Gunnlaugur Björnsson 1994, Árekstur aldar-
innar. Náttúrufræðingurinn 64. 131-138.
PÓSTFANG HÖFUNDAR.
Gunnlaugur Björnsson
Raunvísindastofnun Háskólans
Dunhaga 7
107 Reykjavík
NETFANG gulli@raunvis.hi.is
9