Náttúrufræðingurinn - 1995, Síða 13
Ný ættkvísl
BERFRÆVINGA FINNST
í ÁSTRALÍU
EYÞÓR EINARSSON
ágúst 1994 fann David Noble,
starfsmaður Þjóðgarða- og náttúru-
lífsstofnunar ríkisins Nýja-Suður-
Wales í Ástralíu, sérkennileg tré í
Wollemi-þjóðgarðinum í Bláfjöllum (Blue
Mountains), tæpa 200 knt vestnorðvestur
af stórborginni Sydney. Frá þessu var sagt
í grein eftir Ian Anderson, Melbourne, í
tímaritinu New Scientist í desember 1994,
og er þessi grein að verulegu leyti byggð á
henni. Einnig hefur verið stuðst við frétt
um þessa nýfundnu trjátegund í fyrsta hefti
nýs tímarits sem heitir Plant Talk og kont
út í mars 1995. Loks hef ég fengið frekari
upplýsingar um þessar merku plöntur í
tölvupósti frá Dr. Ken Hill, grasafræð-
ingi við Þjóðargrasasafnið í Grasagarði
Sydneyborgar, en hann vinnur nú að
rannsóknum á nýfundnu trjánum.
■ LIFANDI
STEINGERVINGUR?
áliti grasafræðinga og steingervingafræð-
inga í Ástralíu virðist hér vera um að ræða
áður ókunna ættkvísl trjáa af ættinni
Araucariaceae, sem hvorki hefur fundist á
lífi né sem steingervingur fyrr. Aftur á
móti er þessi ættkvísl án nokkurs vafa
mjög gömul og mætti kalla hana lifandi
steingerving í þeirri merkingu. Af sömu
ætt er tegundin Araucaría heteropliylla,
sem einnig hefur verið nefnd Araucaria
excelsa, en afbrigði af henni er nokkuð
ræktað sem pottaplanta og hefur verið
kallað stofugreni á íslensku, þó sú tegund
sé mjög fjarskyld greni, enda af allt ann-
arri ætt. Önnur núlifandi ættkvísl ættarinn-
ar Araucariaceae er Agathis (sbr. 3. mynd)
og virðist nýfundna ættkvíslin eitthvað
skyldari henni en ættkvíslinni Araucaria,
þó hún sé hvorugri náskyld en hafi samt
nokkurn svip af þeim báðum. Fleiri ætt-
kvíslir hennar eru þekktar sem steingerv-
ingar, m.a. Araucarioides, en nýfundna
ættkvíslin virðist lrkjast henni einna mest.
í fréttum af atburðinum hefur verið talað
um þessi tré sem lifandi steingervinga, en
það er ekki alls kostar rétt því samkvæmt
Eyþór Einarsson (f. 1929) lauk mag.scicnt.-prófi í
grasafræði frá Kaupmannahafnarháskóla 1958. Hann
hefur verið deildarstjóri grasafræðideildar Náttúru-
fræðistofnunar íslands frá 1958 og var forstöðu-
maður stofnunarinnar í 12 ár. Eyþór átti sæti í Nátt-
úruverndarráði 1959-1990 eða í 31 ár og var for-
maður þess 1978-1990. Hann var formaður Hins
íslenska náttúrufræðifélags árin 1964-1965 og
1976-1979 og var gerður að heiðursfélaga 1992.
■ FJÖLFARIN GLJÚFUR MEÐ
FÁFÖRNUM AFKIMUM
Bláfjöllin í suðausturhluta Ástralíu eru
rúmlega 500 milljón ára gömul rofin
fellingafjöll og setlög og ná hæstu hlutar
þeirra rétt yfir 1500 m hæð. Þau eru víða
sundurgrafin og með djúpum gljúfrum,
sem sum eru sáralítið þekkt, vaxin skógi
Eucalyptus- og Acac/'a-tegunda og mjög
fallegt land. Svæðið er vinsælt útivistar-
Náttúrufræðingurinn 65 (1-2), bls. 11-14, 1995.
11