Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1995, Page 31

Náttúrufræðingurinn - 1995, Page 31
9. mynd. Myndin sem Grafton Eliot Smith lét gera af meintum frum- byggjum Ameríku og birtist í The Illustrated London News árið 1922. (Ameri- can Museum of Natural History.) sem kvaðst hafa fundið í Nebraska jaxl er virtist úr manni. Þegar Osborn fékk tönnina til athugunar taldi hann augljóst að hún væri úr prímata en treystist ekki til að skera úr um hvort það hefði verið api eða maður. Hann uppgötvaði í náttúrugripasafni sínu mjög líkan jaxl, sem fundist hafði á sömu slóðum 1908, og gaf tegundinni fræði- heitið Hesperopithecus haroldcooki, vest- urapi eða vesturheimsapi Harolds Cooks. Grafton Eliot Smith, sem fyrr er nefnd- ur, var ekki í vafa um að Hesperopithecus hefði verið frummaður. Hann réð lista- mann til að draga mynd af karli og konu af tegund þessara frumbyggja vesturheims í eðlilegu umhverfi. Myndin var birt í The Illustrated London News árið 1922 (9. mynd). Nú er ljóst að fyrstu menn sem til Ameríku komu voru af tegund okkar, Homo sapiens, og ólíklegt er að leifar náinna frænda eða forfeðra manna eða mannapa eigi eftir að finnast þar. A dögum Osborns var talið að menn hefðu þróast af dýrum í Asíu. Þess vegna var á engan hátt hægt að útiloka það að frumstæðir menn eða prímatar náskyldir mönnum hefðu komist þaðan til Norður-Ameríku meðan meginlöndin tengdust þar sem nú er Beringssund. Tennurnar tvær sem Osborn studdist við voru mjög slitnar. Hann hóf því leit að betri steingervingum, meðal annars til að fá úr því skorið hvort um frummann eða frumapa væri að ræða. Þegar minna slitnar tennur fundust reyndust þær hvorki úr manni né apa heldur úr útdauðu naflasvíni, Pros- thennops. Það var staðfest í grein í banda- ríska vísindaritinu Science í desember 1926. (Raunar höfðu Harold Cook, sá sem sendi fyrstu tönnina til Osborns, og starfs- maður við Bandaríska náttúrugripasafnið vakið athygli á því árið 1909 hversu auðvelt væri að villast á jöxlum þessa naflasvíns og manns. Báðir létu samt blekkjast!) Osborn átti löngum í útistöðum við kristna bókstafstrúarmenn út af þróunar- kenningunni. Þeim var að vonum skemmt þegar upp komst að þróunarsinnar villtust á manninum, sköpuðum í guðs mynd, og svíni! ■ TÝNDUR EÐA ÓFUNDINN? Svo aftur sé vikið að upphafi þessa pistils, um týnda hlekkinn, hlýtur það að vera rangnefni. Til þess að eitthvað sé týnt þarf það að hafa verið víst áður. Því er hér lagt til að hugtakið „the missing link“, að því leyti sem ástæða er til að nota það, verði þýtt ófundni hlekkurinn. Hér má þó benda á eina undantekningu. Bein pekingmannsins, sem áður eru nefnd, voru talin í hættu í Kína í síðari heims- styrjöld. Þau voru því sett í skip til flutnings til Bandarfkjanna en því mun hafa verið sökkt. Að minnsta kosti komu beinin aldrei fram. 29
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.