Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1995, Síða 33

Náttúrufræðingurinn - 1995, Síða 33
Þankabrot UM LANDBROT JÓN JÓNSSON Landslag í lágsveitum Vestur-Skafta- fellssýslu einkennist af víðáttumiklum hraunbreiðum og söndum með gróður- vinjum í hraunum og undir hraun- brúnum. Hvergi í byggðum landsins eru náttúruöflin mikilvirkari en einmitt hér. Eldstöðvar inni á hálendinu hafa veitt hinum œgilegustu hraunflóðum fram á láglendið og jökulvötnin flœm- ast um aura og sanda sem þœr eru stöðugt að hlaða undir sig. arðsögulega séð einkennist hálendi JVestur-Skaftafellssýslu af þeim mörgu stóru eldgosum sem þar _____ hafa orðið í aldanna rás. Vitað er nú um 9 eldstöðvar sem þar hafa verið virkar á nútíma, eða á síðastliðnum 10-12 þúsund árum. Ljóst er að mörg þeirra hafa stórgos verið og nokkur með hrikalegu hraunrennsli. Þau hraun hafa að verulegu leyti skapað láglendi sýslunnar. Lágsveit- irnar eru: Meðalland, Álftaver, Landbrot Jón Jónsson (f. 1910) lauk fil.lic.-prófi f jarðfræði frá Uppsalaháskóla árið 1958. Hann starfaði hjá Raf- orkumálaskrifstofunni og síðar Orkustofnun frá 1958 til 1980 er hann lét af störfum fyrir aldurs sakir. Þar fékkst Jón einkum við leit að köldu og heitu vatni og síðast við gerð jarðfræðikorts af Reykjanesskaga. A árunum 1969-1974 starfaði Jón í Mið-Amerfku á vegum Sameinuðu þjóðanna og fór síðar fjölda ferða sem ráðgjafi á þeirra vegum, einkum til Afríkulanda. Eftir að hann lét af störfum hefur hann haldið áfram rannsóknum, m.a. við Eyjafjallajökul og í nágrenni við æskuslóðirnar í Vestur-Skaftafellssýslu. Jón Jónsson er heiðursfélagi í Hinu íslenska náttúrufræði- félagi. og Brunasandur. Sameiginlegt með þeim öllum er að þær standa á og/eða við hraun sem á mismunandi tímum hafa runnið ofan af hálendinu, sum allt í sjó fram, svo sem sjá má á Alviðruhömrum í Álftaveri (1. mynd) en þar hefur sjór brotið framan af forsögulegu hrauni. Að hluta til á þetta líka við um Fljótshverfi. Jarðsaga þessa svæðis í heild er hin sama og á þessa leið: Við lok síðasta jökulskeiðs náði sjór upp að rótum fjallanna. Þá voru víkur og firðir þar sem nú eru hvammar eða dalir. ■ LANDRIS OG ELDGOS Þegar ísfarginu létti af landinu reis það, líklega nokkuð hratt. Ár og lækir tóku þá að hlaða upp undirlendi en við það voru jökulárnar mikilvirkastar og byggðu upp jökulsanda sem loks náðu frá Mýrdals- fjöllum að Horni. Gróður hefur án efa fljótlega náð fótfestu meðfram árkvíslum og lónum, eins og nú má sjá á Breiða- merkursandi og neðanverðum Skeiðarár- sandi. Ætla má að svo hafi einnig verið þar sem nú er Álftaver og Landbrot. Næsti þáttur sögunnar er að inni á hálendinu urðu mikil eldgos sem veitlu hraunstraumum niður dali og árfarvegi. Hraun breiddust út yfir sandana allt til sjávar sums staðar. Næsti þáttur er svo sá að jökulár tóku að bera leir og sand í hraunin sem við það þéttust þannig að það vatn sem hvarf í hraunið hraktist þar „fram um undirgöng“ og kom loks fram sem tærir lækir við hraunrönd, tók að renna ofan á hrauninu Náttúrufræðingurinn 65 (1-2), bls. 31-51, 1995. 31
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.