Náttúrufræðingurinn - 1995, Page 40
6. mynd. Landbrotshólar. Fremst Háihóll, fjœr t.v. Hliðskjálfr. Ljósm. Jón Jónsson.
Augljóst er að gróðurleifar þessar geta
ekki verið annars staðar frá komnar en úr
undirlagi hraunsins.
Út frá þessu virðist rökrétt að álykta að
suðurmörk hólasvæðisins sýni hvar vot-
lendi endaði en þurrlendi tók við, en það
gæti rýmilega hafa verið einmitt þar sem
elsta hraunið er undir og sýni því norður-
mörk þess.
Það var Frakkinn Eugéne Robert, sem
var náttúrufræðingur í leiðangri Paul
Gaimards (þess sem Jónas Hallgrímsson
orti svo fagurlega um „Þú stóðst á Heklu
tindi hám“) til Islands 1836, sem fyrstur
manna svo vitað sé fann skýringu á mynd-
un gervigíga og það var einmitt austur í
Landbroti (Robert 1840). Hann taldi að
gervigígir mynduðust þar sem hraun renn-
ur yfir votlendi eða í grunnt vatn. Rauð-
hóla við Elliðavatn taldi hann einnig
þannig myndaða. Nú er þessi skoðun fyrir
löngu almennt viðurkennd. Þar með er þó
ekki sagt að ekki geti gervigígir orðið til á
annan hátt, t.d. af gasi í hraunkvikunni
sjálfri. Það verða þó að jafnaði ekki um-
fangsmiklar myndanir. Þegar hraun hefur
runnið nokkra leið og tekið að kólna veltur
það fram líkt og belti á jarðýtu. Við það
getur það tekið í sig efni úr undirlagi
hraunsins og fært upp á yfirborð. Fjöldi
athugana víðs vegar, þ.á m. úr þessu
hrauni og Skaftáreldahrauni, staðfestir
þetta (Jón Jónsson 1970).
■ LANDBROTSHÓLAR
Fjölbreytni í útliti hólanna í Landbroti er
með ólíkindum (6. mynd). Sumir hafa
dæmigerða gíglögun með skál í kolli, aðrir
eru uppmjóar strýtur og enn aðrir lang-
dregnir hryggir eða gígaraðir. Flestir eru
hlaðnir úr oftast rauðu en stundum svörtu
gjalli, hraunkleprum og hraunflygsum, alla
vega löguðum, og hraunkúlum. Nokkrir
eru hraunkleprahringir eða djúp og þröng
gjögur sem „horfa til himins hljóðu auga“.
Sumir hafa jafnvel lokast í toppinn svo úr
varð hraunhvelfing að innan með niður-
hangandi grýlukertum úr hraungleri. Dæmi
er um að slík myndun hafi verið notuð sem
fjárskýli (Þórarinn K. Magnússon 1988).
Hæstur Landbrotshóla er Digriklettur og
nær 65 m hæð yfir sjó. Hóllinn er með
gíglögun og skálin sunnan í honum nokk-
uð hallandi. Á skálarbarminum sunnan-
verðum er ábúðarmikill hraunklepra-
drangur, ekki hár en allmikill ummáls. Af
honum hefur hólinn fengið nafn. Af
hólnum er víðsýni mikið. Á þessu svæði
38