Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1995, Page 45

Náttúrufræðingurinn - 1995, Page 45
við Uxatinda austur á móts við Tröll- hamar, það séð verður. Rauðahnúk (10. mynd) ber hátt nálægt vesturenda gíga- raðarinnar við Kamba og geysistórir gígir eru í henni austur með Kömbum og einn er þar, firnastór gjallgígur, vestan ár og hefur Skaftá sorfið allmikið úr honum að austan. Sá er nokkuð utan við aðalgígaröðina og er þar með ljóst að gosið hefur á sprungubelti fremur en á einni sprungu, en svo mun raunar oftast vera um sprungugos. Þetta mikla sprungubelti má rekja svo að segja jökla á milli, frá Mýrdalsjökli til Vatna- jökuls. Á því belti er Eldgjá og raunar hluti af því, en sýnt hefur verið fram á að gos í Eldgjá hefur orðið mörgum öldum eftir gosið í Kambagígum og að hraun úr því Eldgjárgosi hefur ekki náð niður í dal Skaftár austur af Gjánni hvað þá lengra, þótt nú hafi það verið fullyrt án raka í nær 100 ár (Jón Jónsson 1987). Engar eld- stöðvar aðrar en Kambagígir eru þekktar á þessu svæði, þær er gosið hafi hrauni af Kötlu-Eldgjár-gerð. Af þessum sökum, og vegna allra að- stæðna, verður því hiklaust slegið föstu að hraun það sem Landbrotsbyggð stendur á sé úr Kambagígum komið og ætti því í jarðfræðilegu samhengi að nefnast Kambagígahraun. ■ HVENÆR VARÐ GOSIÐ? í „dal eldanna“ er vitað um a.m.k. fjórar eldstöðvar sem virkar hafa verið á nútíma, þ.e. á sl. 10-12 þúsund árum. Auk þess hefur gosið þrisvar í Eldborgaröðum (Lakagígum). Gosin á þessu tiltölulega afmarkaða svæði eru þá orðin sjö. Afstaða Kambagíga til annarra eldstöðva sýnir að mjög langt er síðan þeir voru virkir; auk þess sýnir veðrun hraunsins og gíganna að svo hlýtur að vera. Af því sem séð verður kringum gígina verður ekki mikið ráðið um aldur þeirra. Jarðlög ofan á hrauninu niðri í Landbroti segir meira um það atriði. Nú liggja fyrir fimm geislakolsaldurs- ákvarðanir (14C) á gróðurleifum sem safn- að var ofan á hrauninu hjá Ytri-Dalbæ og í Ásgarðshálsum. Allar sýna þær háan ald- ur, mest 6200 ± 100 14C-ár (14C ár nálgast en er ekki sama og almamaksár). Það skal hér tekið fram að frá neðsta aldurs- ákvarðaða laginu niður á yfirborð hrauns- ins eru 54 cm. Það þýðir að þegar það öskulag féll hafði vel hálfs metra þykkur jarðvegur náð að myndast ofan á hrauninu á staðnum þar sem sýnið var tekið. í þeim jarðvegi eru óhreyfð öskulög, þar á meðal eitt alveg ofan í yfirborði hraunsins. í því má greina mosa og gæti það þýtt að hraunið hafi aðeins verið mosagróið þegar sú aska féll. Sé nú borið saman gróðurfar í Skaftáreldahrauni niðri í byggð réttum 200 árum eftir gos gæti það þýtt að Kamba- gígahraun hafi verið a.m.k. 200 ára þegar sú aska féll á hraunið mosa gróið. Hér skal nú ekki meira um þetta sagt nema hvað þetta sýnir að það er engan veginn órými- legt að gera ráð fyrir að gosið í Kamba- gígum hafi orðið fyrir um 6500-7000 árum, en það orðið hafa skeð fyrr. ■ FARVEGIR OG FORNARÁR Að minnsta kosti tíu fyrstu árin eftir Skaft- árelda var Skaftá hjá Kirkjubæjarklaustri „aðeins lítil á og alveg tært bergvatn“ (Sveinn Pálsson 1945). Vafalaust hefur svo einnig verið eftir að hraunið úr Kambagígum hafði fallið niður eftir gljúfrinu. Þáttur Skaftár hefst fyrir alvöru þegar hitinn í hrauninu inni á heiðum hefur ekki lengur megnað að breyta vatni í gufu. Þegar áin svo kemur niður af hálendinu breytist hlutverk hennar, rofmátturinn verður nánast enginn, en í stað þess að sverfa niður fer áin nú að hlaða upp, fylla hverja holu og sprungu í hrauninu leir og sandi þar til það verður sem næst þétt og vatnið tekur á ný að kvíslast um sandorpið hraun, nýjan jökulsand. Þegar svo, eftir aldalangt starf, áin hefur þétt hraunið a.m.k. á köflum alveg framá brún, snýst dæmið við á ný og áin fer að grafa sig niður í hraunið og sinn eigin framburð afturábak. Fallið fram af brúninni gaf 43
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.