Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1995, Side 70

Náttúrufræðingurinn - 1995, Side 70
áður var minnst á. Efnin sem myndast í mónum eru aðallega lífræn og eru helstu flokkar þeirra eftirfarandi: 1) bítúmen 2) eggjahvítuefni 3) kolvetni 4) húmusefni Hér á eftir verður greint frá rannsókn sem beindist að tveimur mikilvægum eiginleikum íslenskra mómýra: steinefna- magni og sýrustigi. Steinefni í mó I íslenskum mýrum er mikið af steinefnum miðað við mýrar annarra landa. Þau eru einkum eftirfarandi: loftborin eldfjalla- aska, fok af þurrlendissvæðum og fram- % steinefni 0 20 40 60 80 100 /. mynd. Myndin sýnir magn steinefna í mýrarsniði frá Víðimýri í Skagafirði. Merkingamar Hn04, H}, H4 og Hs sýna ösku úr stóru Heklugosunum (samanber texta). burður yfirborðsvatns. íslenski steinefna- jarðvegurinn er gerður úr gjósku, blá- grýtis- og móbergsmylsnu. Efnasamsetning þessara bergtegunda er nauðalík. Þar að auki er í steinefnajarð- veginum líparít, þá helst sem gosaska og vikur. Einnig er nokkuð af jökulleir í honum og að auki svonefnt allófan, sem er eins konar leirtegund og verður einkum til utan á móbergskornum. Loks er að geta bergbrota og kristalla. Hlutfall þessara steinefna innbyrðis hefur breyst talsvert í tímans rás. Sé tekið dæmi af rannsóknum móajarðvegs í Skagafirði (Grétar Guð- - bergsson 1975) má sjá, þegar borin eru saman tvö tímabil jarðvegssögunnar, hið fyrra frá því fyrir um 6600 árum og til um 4000 ára fyrir okkar daga og hið síðara tímabilið frá landnámi fram á tuttugustu öld, að hlutfall ljósu líparítöskunnar hefur aukist úr 4% á fyrra tímabilinu í 20% á því síðara. Hlutur bergbrota og kristalla hefur einnig aukist úr 4% í 14% á sama tíma. Breytingar þessar verða einkum af tveimur ástæðum. A myndunartíma jarðvegsins, sem er 9-10 þúsund ár, hafa orðið allmörg stór líparítöskugos, einkum Heklugosin H3 fyrir um 2800 árum og H4 fyrir um 400Ó árum. Einnig hefur orðið umlögun jarð- vegs vegna rofs hans á einum stað og upphleðslu á öðrum. Steinefnamagnið í íslensku mýrunum veldur því að þær hafa verið uppskerumeiri en flestar mýrar í nálægum löndum og hafa þær verið nota- drýgri í ræktun vegna steinefnanna. I mýrunum er mikið af dökkum steinteg- undum sem veðrast fremur auðveldlega. Það hefur áhrif á eiginleika mýranna, eins og sjá má á 1.-5. mynd. Þá er rétt að benda á að í mýrum eru oft þónokkrar breytingar á vatnsstöðu þannig að efsta lag þeirra þornar og blotnar á víxl. Vatnsborðsbreytingar af þessu tagi valda aukinni efnaveðrun, einkum á kornum úr dökku steintegundunum, sem eru ríkar af járni og magnesíum. Við þornunina kemst loft að kornunum og súrefni binst málm- steindunum og þær „ryðga“. Næst þegar kornin blotna við hærri grunnvatnsstöðu leysist ryðið upp og flyst með lausninni í 68
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.