Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1995, Page 85

Náttúrufræðingurinn - 1995, Page 85
2. mynd. Ropkarri á óðali við Úlfarsfell, Reykjavík í maí 1995. — A territorial cock Rock Ptarmigan. Ljósm./photo Jóhann Oli Hilmarsson. stöðvarnar sjálfar voru staðsettar af handahófi (1. mynd). Það var gert með því að leggja hnitakerfi með punktum völdum af handahófi yfir kort af móunum í kvarðanum 1:50.000. Einu skilyrðin sem punktamir þurftu að uppfylla var að þeir lentu í mólendi og að fjarlægðin milli þeirra væri að minnsta kosti 1 km. Landakort og áttaviti (Silva Ranger) voru notuð til að miða út stöðv- arnar úti á mörkinni. Hluti talningastöðvanna (19) var innan við 10 km frá sjó en hinar voru í heiðunum, lengst rúmlega 50 km frá sjó. Talningastöðvarnar á Tjörnesi vom flestar á bilinu 100-200 m yfir sjáv- armáli en heiðarnar hækk- uðu inn til landsins og syðstu stöðvarnar voru á bilinu 300-400 m yfir sjávarmáli. Meðalhalli heiðanna við talningastöðvarnar var 2,5° (0,6-8,5°) og oftast hallaði mót vestri (meðalstefna 222°). Rjúpnatalningar fóru fram dagana 5- 13. maí (37 stöðvar) og 20. maí (5 stöðv- ar). Talningarnar voru gerðar snemma morguns (06:00-10:00) eða síðla dags (17:00-22:00). Ástæðan fyrir þessari tímasetningu var að karrarnir liggja fyrir yfir hádaginn og birtuskilyrði leyfa ekki talningar yfir hánóttina. Þegar komið var á talningastöð var byrjað á að merkja ná- kvæma staðsetningu inn á svarthvíta loft- mynd af svæðinu, síðan var sett niður merki, 1,5 m há flaggstöng, þannig að auð- velt væri að finna stöðina síðar um sumar- ið til gróðurmælinga. Rjúpnatalningin stóð yfir í nákvæmlega 20 mínútur á hverri stöð og var þá skimað í allar áttir eftir rjúpum. Sjónauki var notaður til að auðvelda leit. Á þessum árstíma eru karramir mjög áber- andi, þeir eru hvítir á litinn og láta mikið á sér bera (2. mynd). Allar rjúpur sem sáust voru kyngreindar og fjarlægðin í þær mæld með fjarlægðarmæli (Rangematic 600 og 1200). Uppgefin nákvæmni mæl- anna var ± 1 m við 100 m, ± 9 m við 300 m og ± 100 m við 1000 m. Aðeins rjúpur sem sáust frá talningastöðinni voru teknar með. Niðurstöður þessara talninga voru notaðar sem kvarði á þéttleika rjúpna til að bera saman við niðurstöður gróðurmælinga. Einn maður taldi á fjórum stöðvum á dag, tveimur að morgni og tveimur að kvöldi. Stöðvarnar voru fundnar þannig að lagt var af stað fótgangandi frá þjóðvegi eins nálægt fyrstu stöð og mögulegt var. Gengið var rakleitt og farið eftir áttavita. Að lokinni talningu á fyrstu stöðinni var stefnan tekin á talningastöð númer tvö og að því loknu gengið niður á þjóðveg. Á þessum göngum um heiðarnar voru rjúpur taldar á sniðum. Breiddin á sniðinu var hugsuð óendanleg. Allar rjúpur sem sáust frá sniðlínu voru taldar og kyn skráð, fjar- lægð í þær frá þeim stað þar sem þær sáust fyrst (r.) mæld með fjarlægðarmæli og sjónhorn í fuglinn miðað við sniðlínu (q) 83
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.