Náttúrufræðingurinn - 1995, Page 111
2. mynd. Steingerðar skeljar í hörðu, siltkenndu seti í Njarðvíkurheiði. - Subfossil shells
in consolidated siltstone at Njarðvíkurheiði. Ljósm. Haukur Jóhannesson.
setið. Jökulrákir á grágrýtinu stefna úr
suðsuðaustri. Bæði utan girðingar vestan-
megin og í austurjaðri efnisnámsins sést að
ofan á harða setinu er rúmlega eins metra
þykkt lag af lausri fínmöl og sandi með
láréttri lagskiptingu, en ekki hafa fundist
skeljar í því. Yfirborð lausu setlaganna
hefur að mestu verið rennislétt, fyrir utan
dreif stórra steina, en nú hefur því mest-
öllu verið raskað. Við álítum að malar- og
sandlagið sé strandhjalli en steinadreifin
muni hafa bráðnað úr jöklum við enn hærri
sjávarstöðu. Hæð malarsléttunnar er sam-
kvæmt kortum nálægt 19 m y.s.
Milli harðnaða siltsetsins með skeljun-
um og lausu laganna ofan á er augljós rof-
flötur, e.t.v. eftir jökul en engar menjar
hans hafa þó fundist. Skal því látið liggja
milli hluta um sinn hvers eðlis rofflöturinn
er.
Óvíða er nema efsti hluti harðnaða set-
lagsins aðgengilegur. Er við komum að
þessu fyrst hafði þó jarðýta tekið dálitla
rispu niður í það en hvergi sást niður úr
laginu. Virtist okkur að mest væri um
skeljar ofantil í því. Langmest ber á smyrs-
lingi en einnig finnast þar hallloka og
gljáhnytla. Skeljarnar eru yfirleitt heilar
og margar í lífsstöðu.
Mikill munur á hörðnunarstigi setlag-
anna vakti grun um að neðra lagið kynni
að vera miklu eldra en lausu setlögin
ofaná, jafnvel frá síðasta hlýskeiði eins og
Kuthan (1943) gat sér til. Við tókum því
allstórt sýni af skeljum úr lausu blokk-
unum við Hafnaveginn og sendum 20 g af
skeljum í aldursgreiningu til Beta Analyti-
cal Inc. rannsóknastofunnar í Miami í
Flórída.
■ aldurskeljanna og
ÁRFERÐISANNÁLL
GRÆNLANDSJÖKULS
l4C-aldur skeljanna reyndist vera 20.630 ±
340 BP ár eftir að tækjaaldur hafði verið
leiðréttur miðað við '3C/14C-hlutfall. Kom
aldurinn nokkuð á óvart af tveimur ástæð-
um. Annars vegar er talið að á síðasta
109