Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1981, Page 13

Náttúrufræðingurinn - 1981, Page 13
úr 12 örkum í 14 á ári. Hefur ritið oftast haldið þeirri stærð síðan, en stundum líka gert betur. Tala félagsmanna hefur stöðugt farið vaxandi, einkum ársfélaga inn- anlands, en þeir voru 155 í árslok 1951 og 864 í árslok 1965. í árslok 1980 voru ársfélagar innanlands orðnir 1590, en aðrir félagar og áskrifendur ritsins heima og erlendis voru 231, alls 1821. Arið 1956 tók Sigurður Pétursson við ritstjórn Náttúrufræðingsins, en Sturla Friðriksson, erfðafræðingur, tók þá við formennsku í Náttúrufræðifélaginu. Þrír náttúrufræðingar voru fengnir að ritinu sent meðritstjórar til aðstoðar við öflun efnis. Voru það þeir Finnur Guðmundsson, fuglafræðingur, Sigurður Þórarinsson, jarð- fræðingur, og Trausti Einarsson, jarðeðlisfræðingur. Árið 1961 bættist svo Eyþór Einarsson, grasafræðingur, í hópinn. Gerðar voru árið 1956 nokkrar breytingar á frágangi ritsins. Auglýsingar á kápu voru felldar burtu. I staðinn komu á innsíður kápunnar upplýsingar um Náttúrufræðifélagið og Náttúrufræðinginn, bæði á ís- lensku og ensku, en á öftustu síðu kápunnar var sett efnisyfirlit heftisins hverju sinni. Allar auglýsingar annars staðar í ritinu voru svo felldar niður nokkru síðar. Á forsíðu kápu hvers heftis var, auk ártals og númera árgangs og heftis, tilgreint bæði mánuðinn og árið, þegar heftið kom út. Sömu upplýsingar voru settar efst á fremstu siðu textans. Var þetta gert til þess, að sjá mætti raunverulegan aldur efnisins i heftinu, ef dráttur hefði orðið á útkomu þess, en svo vill oft verða, sem kunnugt er. Prentun ritsins var flutt í Prentsmiðjuna Odda, þar sem hún fer ennþá fram. I tilefni af 25 ára afmæli Náttúrufræðingsins var gefin út sérprentuð Höfunda- og efnisskrá yfir 1. — 25. árgang ritsins, en Sigurður Pétursson hafði tekið hana saman. Eftir 10 ára starf þótti Sigurði tími til kominn að hætta og skipta bæri um ritstjóra. Tók þá við Örnólfur Thorlacius, menntaskólakennari, en hann ritstýrði aðeins árganginum 1966. Um áramótin 1967 — 68 urðu aftur ritstjóraskipti við Náttúrufræðinginn, og tók þá við Óskar Ingimarsson, bókavörður. Þá var og sett á laggirnar ritnefnd í stað meðritstjóranna og tóku þar sæti: Eyþór Einarsson, grasa- fræðingur, Arnþór Garðarsson, dýrafræðingur, Sveinbjörn Björnsson, eðlisfræð- ingur, Þorleifur Einarsson, jarðfræðingur og Örnólfur Thorlacius, menntaskóla- kennari. Hefur nefnd þessari ekki verið breytt síðan. Nokkur dráttur hafði orðið á útkomu ritsins, en Óskar var fljótur að vinna hann upp. Kom árgangurinn 1967 út á árinu 1968 og siðan árgangarnir 1968—1971 sem næst á tilsettum tímum. Óskar Ingimarsson er sá eini af ritstjórum Náttúrufræðingsins, sem ekki hafði lagt stund á náttúrfræði. Kom það ekki að sök og fórst honum ritstjórnin mjög vel úr hendi. Lauk hann henni með því að taka saman höfunda- og efnisskrá yfir 26.—40. árgang ritsins, og birtist hún i 4. hefti 41. árgangs í april 1972. Ritstjórar Náttúrufræðingsins urðu síðan: Sigfús A. Schopka, fiskifræðingur, árin 1972—75, og Kjartan Thors, jarðfræðingur, 1976—80. Hefur ritið dafnað vel undir þeirra stjórn, bæði hvað snertir fjölbreytni efnis og frágang. Efnisval og höfundar. Um efni Náttúrufræðingsins hefur að sjálfsögðu oft verið rætt á aðalfundum félagsins, og skoðanir þá skiptar um, hvort það ætti aðallega að vera alþýðlegt eða vísindalegt. Án þess, að nokkrar fundarsamþykktir hafi verið gerðar 7
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.