Náttúrufræðingurinn - 1981, Page 16
Sigurður Þórarinsson:
Alfred Wegener — Aldarminning
I. Maðurinn og verk hans*
Stóru skrefin í þróun jarðvísinda, sem
og ýmissa annarra greina raunvísinda,
má aðallega rekja til tveggja orsaka og
fara þær raunar ósjaldan saman. Onnur
er sú, að ný eða bætt rannsóknartækni
leiðir í ljós áður ókunnar staðreyndir og
auðveldar könnun annarra. Dæmi um
þettaeru: gildi tilkomu sjónaukans fyrir
stjörnufræðina og Nicol prismans, eða
silfurbergsprismans í smásjám fyrir
bergfræðina. Hin orsökin er sú, að fram
koma menn, sem varpa nýju ljósi á
fyrirbæri og staðreyndir, sem áður voru
meira eða minna kunn, og uppgötva ný
samhengi. Kópernikus og Darwin eru
klassísk dæmi um slíka menn, og innan
jarðvísindanna telst til slíkra manna sá,
er hér verður gerður að umtalsefni, Al-
fred Wegener.
í vetur hefur þess veriö minnst með
ýmsum hætti i mörgum löndum, og þó
einkum í heimalandi hans, Þýskalandi,
að öld var liðin frá fæðingu hans 1.
nóvember síðastliðinn, og hálf öld síðan
hann á fimmtugsafmæli sínu lagði upp í
*Hádegiserindi í útvarpi sunnudaginn 1.
febrúar 1981.
þá för frá rannsóknastöðinni Eismitte á
miðjum Grænlandsjökli, er reyndist
helför, svo sem siðar getur, en dánar-
dagur ókunnur.
íslendingar hafa, mörgurn þjóðum
fremur, ástæðu til að minnast þessa
manns og ævistarfs hans, og hefði mátt
fyrr vera, en betra seint en aldrei. I fyrri
hluta þessa minningarspjalls er stuðst
mjög við nýlega útkomna ævisögu
Wegeners (Alfred Wegener und die
Drift der Kontinente. Stuttgart 1980)
eftir landa hans, Martin Schwarzbach,
sem lengi var prófessor í jarðfræði í
Köln, kennari tveggja í hópi okkar
fremstu jarðfræðinga og hefur ferðast
mikið um ísland.
Alfred Lothar Wegener, eins og hann
hét fullu nafni, fæddist í Berlín, þar sem
faðir hans, Richard Wegener, guðfræð-
ingur að mennt og síðar doktor að
nafnbót, var um áratugaskeið forstöðu-
maður heimavistar menntaskóla, sem
einkum var ætlaður börnum betri
borgara. Wegener var yngstur fimm
systkina, tvö dóu ung, en eftir lifðu systir
og bróðir, Kurt, tveimur árum eldri en
Alfred og honum mjög samrýmdur.
Náttúrufræðingurinn, 51 (1—2), bls. 10—26, 1981
10