Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1981, Side 28

Náttúrufræðingurinn - 1981, Side 28
1902, að landrek frá pólsvæðunum myndi geta átt sér stað. Árið 1908 gaf bandarískur visindamaður, Frank B. Taylor, út bækling á eigin kostnað, er var síðan birtur 1910 í Geological Society of America Bulletin 21 (bls. 197 — 226), með titlinum: Beanngs of the Tertiary mountain bell in the origin of the earlh ’splan. Þar setur Taylor fram skoðanir um landrek (7. mynd), sem um margt voru mjög svip- aðar skoðunum Wegeners en i sumu líkari núráðandi skoðunum um rek, eins og sjá má á korti hans. Taylor vekur athygli á Miðatlantshryggnum í sam- bandi við rekið. Hann reiknaði einnig með reki í átt að miðbaug. Að því er Wegener heldur fram í fyrsta fyrirlestri sínum um landrekið, hafði hann enga vitneskju um þessa fyrirrennara sína, þegar skoðanir hans voru að mótast. Hann setur landreks- kenninguna fram á miklu breiðari grundvelli en Taylor, færir fyrir henni miklu fleiri og meira sannfærandi rök og fylgir málinu fast eftir. Það var að heita má eingöngu hans rit, sem kom róti á hugi manna og menn tóku afstöðu til. Er ekki að ófyrirsynju, að bent hefur verið á Alfred R. Wallace og Charles Darwin sem hliðstæðu Taylors og Wegeners. Þegar frá upphafi urðu skoðanir mjög skiptar um Wegenerskenninguna. Hún hlaut marga áhangendur og suma ákafa, en einnig hatrama andstæðinga. Meðal annarra voru tveir af allra fremstu jarðfræðingum Þjóðverja í þann tíma, Hans Stille og áðurnefndur Hans Cloos, í hópi hinna vantrúuðu. Með vaxandi gengi jarðeðlisfræði á 3. og 4. áratug okkar aldar óx mótbyr gegn kenningunni og þá einkum vegna þess, að Jreir kraftar, er Wegener hafði reikn- að með að drifu landrekið, reiknuðust vera hlægilega langt frá því að geta það. Pólflóttaaflið rninna en hundraðþús- undasti þess, er þyrfti til að valda land- reki. I síðari útgáfum bókar sinnar viðurkennir Wegener sjálfur, að fleira muni líklega þurfa til en pólflótta og vesturrek, og telur þar á meðal hitafars- strauma undir jarðskorpunni, sem þá var farið að ræða. I nóvember 1926 var haldin i New York borg, á vegum Félags amerískra olíujarðfræðinga, ráðstefna um landrek og Wegenerskenninguna. Aðalhvata- maður ráðstefnunnar, van der Gracht, varaforseti stórs olíufélags, Maryland Oil Company, lýsti í setningarræðu vaxandi hrifningu sinni af þessari kenningu. En þótt einstaka ræðumaður á þessari ráðstefnu, svo sem hinn virti Reginald Daly, teldu kenninguna at- hyglisverða og i sumu sannfærandi, voru flestir ræðumenn henni mjög and- snúnir. Fóru sumir virtir vísindamenn unt hana háðulegum orðum og segja má, að með þessari ráðstefnu hafi hún verið kveðin svo niður vestanhafs, að hún mátti heita þurrkuð út úr hugurn jarðvísindamanna þar í meir en aldar- fjórðung. En austan hafs voru nokkrir mikilsmetnir jarðfræðingar, sem ekki létu af trúnni á landrek og töldu, að ekki yrði gengið framhjá mörgum rökum Wegeners. enda þótt þeir teldu skýring- ar hans á landrekinu fjarstæðu, og hölluðust helst að hitafarsstraumum undir jarðskorpunni. Meðal þessara jarðfræðinga var Suður-Afríkumaðurinn Du Toit, einn einbeittasti postuli landrekskenningar- innar á 3. og 4. áratugnum, enda nokkur af sterkustu rökum Wegeners sótt til Suður-Afríku. Annar, sem vert er að 22
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.