Náttúrufræðingurinn - 1984, Side 71
Ævar Petersen:
Leðurskjaldbaka fundin við
ísland
Þegar Einar Hansen og sonur hans
Sigurður voru að koma úr róðri á
trillubátnum Hrefnu II frá Hólmavík,
rákust þeir á ferlíki eitt sem maraði í
hálfu kafi. Komu þeir hákarlasókn á
skepnuna, en við það tók hún að
sökkva. Engu að síður tókst þeim að
draga dýrið til Hólmavíkur, en hér
reyndist vera komin risavaxin sæ-
skjaldbaka.
Þetta var 1. október 1963, rétt eftir
hádegi, en þá voru þeir feðgar staddir
skammt innan við Grímsey á Stein-
grímsfirði, á miðjum firði undan
Glámaströnd.
Við komuna til Hólmavíkur var dýr-
ið skoðað af héraðslækninum, sem úr-
skurðaði það nýdautt og ekkert farið
að rotna. Fundurinn vakti talsverða
athygli hér á landi á sínum tíma, enda í
fyrsta sinn sem sannað var að sæ-
skjaldbaka hefði komið til íslands.
Var getið um hana í öllum dagblöðum
dagana 2.-5. október 1963, einnig af
og til fram eftir mánuðinum. Hefur
ekki verið skýrt frá þessum fundi á
öðrum vettvangi, og því er þetta
greinarkorn til komið.
Skjaldbakan var vegin og mæld við
komuna til Hólmavíkur og reyndist
vera:
Þyngd 370-380 kg
Lengd 203 cm
Breidd (ásamt bægslum) 240 cm.
Lengd hvors bægslis 100 cm
Mesta þykkt (hæð) 50 cm
Dýrið var greint til tegundar sem
leðurskjaldbaka og heitir Dermoche-
lys coriacea (Linneus, 1758) á latínu.
Þetta er stærsta skjaldbökutegund sem
til er. Helsta einkenni hennar, auk
stærðarinnar, er bakskjöldurinn. Hann
er með 5 eða 7 hryggjum sem liggja eftir
skildinum endilöngum og er odddreginn
að aftanverðu (Brongersma 1967).
Leðurskjaldbakan á Hólmavík var
keypt af finnanda fyrir 10.000 krónur,
og lagði Menntamálaráðuneytið fram
fé til kaupanna. Gerð var afsteypa af
henni í Kaupmannahöfn, sem varð-
veitt er í Náttúrufræðistofnun íslands
og er til sýnis í safninu (1. mynd).
Aður en skjaldbakan kom til safns-
ins, hélt finnandinn sýningar á henni.
Strax og hún fannst dreif að fólk af
Hólmavík og úr nágrannasveitum til
þess að skoða gripinn. Fór Einar svo
með dýrið til Akraness, þar sem hann
sýndi það 17. október sama ár, en í
Reykjavík 20. október. Á þriðja þús-
und manns munu hafa séð skjaldbök-
una í Reykjavík þennan eina sýning-
ardag.
Leðurskjaldbökur eru sjávardýr,
sem einungis koma að landi til þess að
verpa eggjum sínum. Þær lifa í hlýjum
sjó hitabeltislanda en flækjast stund-
um út fyrir sín venjulegu heimkynni.
Leðurskjaldbökur hafa oft fundist við
Náttúrufræðingurinn 53 (3—4), bls. 161 — 163, 1984
161