Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1988, Blaðsíða 3

Náttúrufræðingurinn - 1988, Blaðsíða 3
Arne Noe-Nygaard Dansk-íslenskar náttúrurannsóknir á Islandi á milli 1920 og 1940 Steindór Steindórsson frá Hlöðum þýddi INNGANGUR Ekki er nema hálf öld liðin, síðan telja mátti á fingrum annarrar handar þá íslendinga, sem fengust við jarð- fræðirannsóknir. I dag er tala þeirra nokkuð á öðru hundraði og við þeim blasir framtíðin. Tildrögin til þess, að ég hefi gert þá samantekt, sem hér fer á eftir, má rekja til vorsins 1986, er ég hitti rninn gamla vin og námsfélaga Steindór Steindórsson, fyrrverandi skólameist- ara á Akureyri. Hann skoraði á mig að skrifa yfirlit um tiltekinn þátt í rannsóknasögu Islands á tímabilinu frá andláti dr. Þorvalds Thoroddsens 1921 og fram að síðari heimsstyrjöld, þar sem ég væri einn á lífi þeirra manna, sem tengdir hefðu verið þeim rannsóknum. Þar eð dr. Sigurður heit- inn Þórarinsson hafði einnig fyrir nokkrum árum hvatt mig til hins sama, hét ég því að gera tilraun þá, sem hér liggur fyrir. Greininni fylgir skrá yfir flestar þær ritsmíðar, sem leiddi af leiðangrunum og nokkur önnur rit, sem frásögninni tengjast. í ritaskrána gæti vantað ein- hver smáskrif, en öll meginritverkin eru þar. Eg vitna ekki beint í þessar greinar í frásögninni, enda er hún ekki eiginleg vísindaritgerð heldur frásögn af rannsóknum. Einnig eru gefnar upp helstu minningagreinar um þátttakendur í leiðangrunum. Þar má finna ítarlegri upplýsingar um menn- ina og verk þeirra. Sumum þeirra fylgja ritverkaskrár þeirra. Enda þótt mörg þau viðfangsefni í jarðfræði íslands, sem mest sóttu á hugi manna á fyrri helmingi aldarinn- ar, séu ekki jafn aðkallandi og knýj- andi nú og þá var, mörkuðu þau engu að síður spor í viðleitni okkar til að skapa þá mynd, sem við nú höfum af jarðsögulegri þróun og byggingu landsins. Og þeir menn, sem þá unnu af kappi að lausn verkefnanna, voru tvímælalaust knúðir áfram af sama kappi og hvötum, sem enn ráða rann- sóknahneigð og þekkingarþrá nýrrar kynslóðar. Það skal þegar tekið fram, að umrætt tímabil einkennist af náinni samvinnu Dana og íslendinga, sem reyndist bæði jákvæð og frjó, og ég hefi ætíð metið mikils. Einn maður, Náttúrufræðingurinn 58 (3). bls. 121-144, 1988. 121
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.