Náttúrufræðingurinn - 1988, Page 34
Voru þær báöar í Norræna húsinu, sú
fyrri í júlí 1985 og sú síðari í júlí-ágúst
1988. Þá hefur félagið hafið útgáfu á
tímariti, sem heitir Steinn. Fyrsta
hefti fyrsta árgangs kom út í sambandi
við síðari sýninguna. Það er í A4
broti, 23 bls., prýtt fjölda mynda,
bæði í lit og svart-hvítu og inniheldur
7 stuttar greinar og einfaldan grein-
ingarlykil fyrir steina og steindir. Rit-
ið mun a.m.k. fyrst um sinn koma út
óreglulega, eftir því sem efni og tilefni
gefast. Það hefur ekki verið selt í
lausasölu í bókaverslunum eða fengið
ákveðið dreyfingarmynstur ennþá, en
panta má áskrift í gegn um áður nefnt
pósthólf.
Náttúrfræðingurinn fagnar hinum
unga félaga sínum og óskar honum
farsældar. Vonandi er að hann eigi í
framtíðinni eftir að flytja áhugasöm-
um landsmönnum fréttir af þeim þús-
undum steinda, sem á jörðinni hafa
fundist og eru enn að finnast.
Steinafræði kallast á erlendum mál-
um mineralogia og annað í þeim dúr,
eftir því hvert tungumálið er. Orðið er
myndað af orðhlutunum logia sem er
grískrar ættar og mineral. Logía er al-
gengt viðskeyti í heitum fræðigreina
og þýðir þá nánast vitneskju- eða
þekkingarkerfi. Mineral er skylt orð-
myndunum minera og mine, sem
merkja náma. Mineral er því það efni
sem unnið er úr námum. í nafni fræði-
greinarinnar hefur það þó mun
þrengri merkingu og á aðeins við
steina, sem hafa ákveðna kristalla-
fræðilega skilgreinda byggingu og
ákveðna efnafræðilega skilgreinda
samsetningu eða samsetningarspönn-
un. íslenska orðið yfir þannig stein er
nýyrðið steind myndað af Trausta
Einarssyni og sett á prent árið 1972 í
bók hans Eðlisþættir jarðarinnar og
jarðsaga íslands. Hann sagði að líta
mætti á orðið sem styttingu úr stein-
eind eða stein-eining og þannig skilið
kæmist það nálægt merkingu orðsins
mineral. I raun ætti því að tala um
steindafræði til þess að halda sam-
ræminu, en svo er þó sjaldnast gert.
Steindafræðin fæst sem sagt ekki við
hvaða brot af bergi sem finna má laust
á jörðinni, eins og hin gamla merking
í íslenska orðinu steinn gæti gefið til
kynna, heldur eingöngu hreinar
steindir.
Komi fleiri en ein steind fyrir í
sama steininum þá kallast það berg.
Um það fjallar fræðigreinin bergfræði,
sem á erlendum málum kallast petro-
logia. Þetta orð er myndað eins og
hitt orðið, nema fyrri hlutinn er dreg-
inn af orðinu petra, sem á grísku
merkir klettur eða bjarg.
Steinafræði hefur ekki notið sérlega
mikilla vinsælda undanfarna áratugi.
Hún er gamalgróin fræðigrein og því
töldu ýmsir hana ekki vera sérlega
frjóa grein til rannsókna og umhugs-
unar. Bergfræðin hefur verið mun vin-
sælli á þessum tíma. Nú undanfarið
hefur hinsvegar verið að koma fram
tækni og ýmiskonar tæki, sem gera
mögulegar rannsóknir á steindum,
sem ekki var áður hægt að fram-
kvæma og eins og við mátti búast kom
þá í ljós að gamla steinafræðin var alls
ekki þurrausin fræðigrein, heldur búa
steindir yfir áður óþekktum eiginleik-
um og gerð, sem engan óraði fyrir.
Nýtt blóð er því hlaupið í steinafræð-
ina og hennar síðasta útspil er fram-
undan en ekki að baki.
152