Náttúrufræðingurinn - 1988, Blaðsíða 21
um sýni úr þremur móbergsskerjum á
leiðinni.
Tvo næstu daga 11. og 12. júní vor-
um við enn veðurtepptir í slydduhríð,
rigningu og þoku. Við héldum því
áfram umræðunni um uppruna mó-
bergsins, þar sem ekki varð farið út úr
tjaldi.
Aðfaranótt hins 13. júní snjóaði
mikið, en um morguninn var kyrrt
veður og þoka. Jón fór niður að
Kálfafelli, en við Nilaus héldum aftur
til fjalla. Ég skoðaði Hágöngur og
fann þar lag af bólstrabergi ofan á set-
lagi jökulmegin í fjallinu, en landmeg-
in var frauðkennd gjóska, sem safnast
hafði undir beru lofti. Við héldum
móbergsumræðunni áfram um kvöld-
ið. Það virtist ljóst, að jökullinn hefði
legið líkt og nú, þegar seinast gaus í
Hágöngum.
Allan daginn hinn 14. var ég að
skoða Hágöngur og Eldgíg sem er fyr-
ir austan þær.
Nú leið að lokum jökulferðarinnar.
Framan af degi 15. júní gengum við
frá söfnum okkar til flutnings og byrj-
uðum að þurrka af okkur flíkurnar.
Klukkan hálf fimm síðdegis var komið
með 10 hesta til að sækja okkur. Við
vorum alla nóttina á ferðinni og náð-
um að Kálfafelli kl. 6 að morgni hins
16. Seinna um daginn hringdi Jón Ey-
þórsson í Nilaus frá Kálfafellsstað.
Hann var í Ahlmanns-leiðangrinum,
sem var að rannsóknum á austanverð-
um Vatnajökli, er við fórum til
Grímsvatna. (Þeim leiðangri er lýst í
bók Ahlmanns: „Pá skidor och till
hást i Vatnajökulls rike“, sem komið
hefur út í íslenskri þýðingu).
Hinn 17. júní gengum við endanlega
frá farangri okkar til flutnings og fór-
um að því loknu í kvöldgöngu um
Kálfafellsland í gróðrarskúr og blæja-
logni. Næstu tvo daga unnum við enn
að frágangi á dóti okkar, röðuðum
dagbókum, kortum og ljósmyndadóti
og reyrðum síðan aftur kassana, sem
geymdu grjótsýni okkar. Útvarpið
skýrði frá því að Kristján X. konungur
hefði komið til landsins hinn 18. júní.
Hinn 20. töluðust Nilaus og Pálmi
við í síma, en ég tók nokkur sýni úr
jökulbergi austan við bæinn.
Að morgni hins 21. kom Jón á
Seljalandi með tvo reiðhesta handa
okkur Nilausi, og síðan riðum við í
heimsóknir á alla bæi í sveitinni nema
þrjá, á einum þeirra var nýlátinn mað-
ur, en mislingar gengu á hinum tveim-
ur. Alls staðar fengum við frábærar
viðtökur, og á hverjum bæ hlutum við
að þiggja góðgerðir, sem að lokum
varð fullmikil áraun fyrir maga okkar.
Daginn eftir klipptum við Nilaus
hvorn annan og sviftum af okkur
skegginu.
Hinn 23. júní héldum við austur á
bóginn í dásemdarveðri. Stefán á
Kálfafelli fylgdi okkur yfir Skeiðarár-
sand og Skeiðará að Skaftafelli, þar
sem við gistum hjá Oddi Magnússyni
bónda í Bölta. Níu klukkustunda
ferðamannaskokk hafði gert okkur
harla eymslaða í bakhlutanum, en
gott var þá að hátta í reglulegt rúm
með hreinum sængurfötum.
Ég reið hinn 24. júní inn í Morsár-
dal og í Bæjarstaðarskóg. Það var
stórkostlegt að koma þar í 26 stiga
hita. Síðan gekk ég á Rauðhella, en
þar er fornt, rauðleitt jökulberg. Eftir
það reið ég inn Morsárdalinn.
Um kvöldið komu þeir Jón Eyþórs-
son og Ahlmann austan frá Fagurhóls-
mýri, og klukkustundu seinna komu
konur þeirra ásamt fylgdarmanni vest-
an frá Núpsstað. Oddur í Skaftafelli
sótti þær út yfir Skeiðará.
Næsta dag, hinn 25. júní, riðum við
Nilaus til Svínafells. Ég mældi upp
jarðlögin fyrir ofan bæinn, en um
kvöldið snerum við aftur til Skafta-
139