Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1988, Blaðsíða 56

Náttúrufræðingurinn - 1988, Blaðsíða 56
fjallgarðinum í Suður-Noregi, en í öðru „heftinu“ eru eingöngu sveppir frá heim- skautalandinu Svalbarða, sem K.M. Jens- sen hefur ljósmyndað. Petta er nánast vísindaleg sveppaflóra, sem mikill fengur er að fyrir sveppa- fræðinga og áhugamenn í norðlægum löndum, því að hér er að finna lýsingar og myndir af ýmsum tegundum sem hvergi vaxa annarsstaðar, og hafa sumar ekki verið skilgreindar almennilega fyrr en í þessu riti. Geta má þess, að Gro Gulden sveppa- fræðingur í Oslo, er meðal færustu núlif- andi fræðimanna á þessu sviði. Lýsingar hennar á tegundunum í bókinni eru mjög skýrar og ýtarlegar og smásæ einkenni einnig skýrð með teikningum. Vistfræði tegundanna eða kjörlendi er ýtarlega lýst, og sérstök áhersla er lögð á kerfisfræðileg- ar skýringar, samnefni tilfærð o.s.frv. Þótt tiltölulega lítill hluti íslensku sveppaflórunnar geti talist heimskauta- eða fjallasveppir, er þessi litla lausblaða- bók, sem vonandi á eftir að stækka, hið mesta þarfaþing hérlendum sveppavin- um. 5. 700 PILZE IN FARBFOTOS. Rose Maria Dahnke & Sabine Maria Dáhnke. Útgefandi: AT-Verlag, Stuttgart. 5. Ausg. 1982 (686 bls. 700 myndir). Þetta er fögur og glæsileg myndabók um hattsveppi aðallega, einkum þá hinar stærri tegundir í skógum Mið-Evrópu. Myndirnar eru flestar „uppsettar", þ.e. sveppirnir eru teknir úr umhverfi sínu og myndaðir heima fyrir á tilbúnu undirlagi, en oftast fylgir þó eitthvað með af þeim gróðri sem óx á staðnum, og gerir það uppsetninguna furðu líflega og jafnframt listræna. Litmyndir bókarinnar eru almennt mjög góðar og prentun þeirra einnig ágæt. Að- eins ein litmynd er á hverri síðu, og stuttar lýsingar á sömu síðunni, sem gerir að verkum að myndin getur verið nokkuð stór. Lýsingar eru skýrar og jafnvel er getið um smásæ einkenni og efnafræðileg, sem er sjaldgæft í almenningsbókum um sveppi. Annars má segja, að þessi sveppabók eigi fremur lítið erindi til okkar Islend- inga, þar sem tegundavalið er mikið mið- að við laufskóga Mið-Evrópu, þar sem samsetning sveppaflórunnar er allmjög frábrugðin þeirri sem hér er tíðast. 6. MUSHROOMS AND OTHER FUNGI OF GREAT BRITAIN & EUROPE. Roger Philips. Útgefandi: Pan Books 1981 (2nd printing 1983). (287 bls. í stóru broti. Um 900 lit- myndir). Þetta er skemmtileg litmyndabók með nýstárlegri og fjölbreyttri uppsetningu. Höfundurinn er ljósmyndari og áhuga- maður um sveppi. Hann myndar alla sveppina inni, á mismunandi lituðu undir- lagi, sem er sérstaklega valið fyrir litinn á hverri tegund. Mikil áhersla er lögð á að sýna sveppina frá sem flestum hliðum og á mismunandi þroskastigi, einnig þverskurði af þeim o.s.frv. Samt eru myndirnar fal- Iegar og listrænar á vissan hátt, og að því er virðist lýtalausar frá myndatæknilegu sjónarmiði. Tegundaval í bókinni er býsna vítt og gefur hún gott yfirlit yfir hina stærri sveppi á Bretlandseyjum og getur einnig gilt sem handbók til greininga á íslenskum svepp- um, því að margt er hér sameiginlegt þess- um grannlöndum. Lýsingar tegundanna eru stuttar en hnitmiðaðar og smásærra einkenna er get- ið. Hins vegar vantar allar lýsingar á stærri einingum í kerfinu (ættkvíslum og ættum) sem dregur nokkuð úr gildi hennar. Hér vill fara sem oftar í slíkum bókum, að betra væri að lýsa skyldum tegundum sam- eiginlega, en draga síðan fram tegunda- muninn, heldur en endurtaka næstum því sömu lýsinguna aftur og aftur. Bókin hefur hlotið miklar vinsældir og hefur m.a. verið þýdd á Norðurlandamál og aðlöguð sveppaflóru Danmerkur og Svíþjóðar. Verði hennar er mjög stillt í hóf.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.