Náttúrufræðingurinn - 1988, Síða 10
annan Dansk-íslenska leiðangurinn.
Úr henni er efnið tekið í þessa rit-
gerð.
Leiðangursmenn voru: dr. Niels
Nielsen, Pálmi Hannesson síðar rekt-
or, Steinþór Sigurðsson, stjörnu-
fræðinemi við Háskólann, síðar fram-
kvæmdastjóri Atvinnudeildar, og
fylgdarmaður þeirra Sigurður Jónsson
frá Brún, kennari. Carslbergsjóður og
Sáttmálasjóðurinn danski lögðu fram
fé til leiðangursins.
Helstu dagsetningar ferðarinnar
voru þessar: Pálmi fór að heiman frá
Akureyri og Steinþór frá Kaup-
mannahöfn snemma í júní. Tekið var
að safna saman hestum 10. júlí og lagt
af stað frá Reykjavík 18. júlí. Til
byggða komu þeir 3. september og
höfðu losað sig við alla hestana 10.
sama mánaðar.
Allan tímann, sem þeir voru á fjöll-
um voru þeir sambandslausir við
byggðir, nema að de Fontenay sendi-
herra heimsótti þá að Veiðivötnum og
dvaldist með þeim dagana 30. júlí-5.
ágúst. Fór hann með þeim þar um ná-
grennið og upp undir Vatnajökul.
Rannsóknasvæði leiðangursins var
frá Þjórsá og Köldukvísl að vestan og
Tungnaá að austan, norður að
Tungnafellsjökli, og suður á móts við
Heklu og Torfajökul. Sakir hagleysis
á mestum hluta þessa svæðis voru
meginstöðvar þeirra félaga við Veiði-
vötn og í Illugaveri, en einnig höfðu
þeir stutta viðdvöl í Botnaveri og við
Landmannahelli.
Þeir lögðu af stað með 17 hesta, en
sendu 4 þeirra aftur til byggða, jafn-
skjótt og þeir voru komnir að Veiði-
vötnum.
Vistir tóku þeir með til 9 vikna, en
þó svo, að sáralítið var um kjötmeti,
en þeir hugðust þess í stað drýgja
forðann með silungs- og fuglaveiði.
Ekki getur þó ferðaskýrslan um fugla-
6. mynd. Steinþór Sigurðsson (1904-1947)
stundaði nám í náttúrufræðum við Kaup-
mannahafnarháskóla 1923-1929 með
stjörnufræði sem aðalgrein og lauk þar
magistersprófi. Hann var kennari við báða
Menntaskólana og Háskólann eftir heim-
komuna, fyrsti skólastjóri Viðskiptahá-
skólans og fyrsti framkvæmdastjóri Rann-
sóknarnefndar ríkisins, sfðar Rannsóknar-
áðs ríkisins. Hann fékkst mikið við
landmælingar á sumrum. Steinþór Sigurðs-
son, astronomer and the first director of
the Icelandic Research Counsil, was invol-
ved in the surveying of various parts of the
Central Icelandic Highlands for many
years. (ljósm. photo. ?)
veiðarnar, en gnótt var af silungi í
Veiðivötnum.
Meginárangrinum af leiðangrinum
er lýst í áðurnefndri greinargerð og
öðrum ritgerðum, sem getið er í rita-
skrá. Verður hann því ekki nánar
ræddur hér. Hinsvegar þykir mér
hlýða að geta um nokkurn þann
tækjabúnað, sem nauðsynlegur var
hverjum vísindaleiðangri, sem lagði
leiðir sínar inn um óbyggðir Islands á
128