Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1988, Page 28

Náttúrufræðingurinn - 1988, Page 28
1. mynd. Ljósalyng (Andromeda polifolia ssp. polifolia) í Brúnavík. Bog rosemary in Brúnavík, Eastern Iceland (Ljósm. photo Hjörleifur Guttormsson, 24/6 1987). veginum við dýjavætlurnar. Plantan vex dreift og sveigjast stönglarnir upp frá skriðulum jarðsprotum, sem eru niðri í mosanum. Lyngið er lítt áber- andi nema þegar plantan er í blóma í júnímánuði, ef marka má þær tvær at- huganir sem ég gerði á vaxtarstaðnum í Brúnavík. Ljósalyngið er sígrænn dvergrunni, sem vex upp af skriðulum jarðstöngl- um, leggirnir lítið greindir, uppsveigð- ir, 3-7 cm á hæð, með lensulaga, gis- stæðum, hárlausum, yddum blöðum, sem eru 9-17 mm á lengd og 2—4,5 mm breið. Að ofan eru blöðin dökk- græn og leðurkennd, jaðrarnir niður- orpnir, neðra borðið með ljósu, blá- hvítu vaxlagi. Á sumum sprotum eru blöðin ólík þessu, þ.e. styttri, spor- öskjulaga eða öfugegglaga, þunn og rauðmenguð. Slíkir stönglar voru blómlausir, lægri og líklega yngri en hinir. Þessi rauðmenguðu blöð skera sig úr umhverfinu og geta auðveldað að finna lyngið, þegar það er ekki í blóma. Blómin eru rauðbleik í fyrstu en hvítna síðan, sveigjast niður eða slúta á 5-10 mm löngum, rauðleitum blómleggjum með stoðblöðum við grunninn, 2-5 saman í sveipkenndri blómskipan ofarlega á stönglinum, en stundum aðeins eitt. Bikarblöðin eru smá, ljósrauð og umlykja heilkrýnda krónuna, sem er 5-6 mm á lengd með 146

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.