Náttúrufræðingurinn - 1988, Qupperneq 37
ur Þórðarson (1936) segir svo í grein
sinni um lifnaðarhætti í Reykjavík:
„Klemens Jónsson segir í Reykjavík-
ursögu sinni (bls. 6): „Norðvestur í
Effersey er nes, er kallað hefur verið
Reykjarnes, og er það gamalla manna
sögn, að þar hafi verið laug, sem sjór
er nú genginn yfir. Ekkert kannast
samt elztu núlifandi Reykvíkingar við
þessa sögu.“ Um þetta sagði Ólafur
Jónsson mér: „I norður - norðvestur
frá norðvesturhorni Örfirirseyjar eru
tvö sker, annað nær eyjunni, hitt fjær.
Út í þau má ganga um stórstraums-
fjöru. Þau voru í mínu ungdæmi köll-
uð Reykjarnes. Nokkurn spöl fyrir
austan sker þessi, hér um bil mitt á
milli þeirra og Hásteina og þar úti
sem þarinn er þykkastur, var dálítil
flöt flúð, sem var upp úr sjó um stór-
straumsfjörur. í flúðinni var glufa um
hálfa fingurhæð að breidd. Upp úr
þessari glufu rauk um stórstraumsfjör-
ur framan af ævi minni.““
Að líkindum er þessi staður horfinn
undir uppfyllingu. Hiti mun ekki hafa
verið hár, en volgt þótti strákpöttum
er sulluðu í sjónum fyrir rúmum 70 ár-
um að ylja sér á klöppinni (Ágúst
Nikulásson munnl. uppl. 1983).
4 Bjarteyjarsandur á Hvalfjarðar-
strönd. Sagnir eru um það að út af
jörðinni Bjarteyjarsandi í Hvalfirði
þar sem er um 26 m dýpi hafi haldist
auðar vakir á sjónum frostaveturna
1917 og 1918. Ennfremur eru sagnir
um að þarna hafi einnig haldist auðar
vakir frostaveturna fyrir aldamótin.
(Kristján Sæmundsson munnl. uppl.
1984).
5 Akrar í Hraunhreppi. í Akraósi
er jarðhiti í leirum sem koma upp úr á
fjöru og mælist í þeim 40-68°C hiti
(Kristján Sæmundsson 1975).
6 Berserkseyri í Eyrarsveit. í norð-
vesturátt frá bænum Berserkseyri í
Eyrarsveit kemur mikill skerjagarður
úr sjó á fjöru. í einu af norðaustlægu
skerjunum er jarðhiti sem einungis
kemur úr sjó á stórstraumsfjöru og er
vatnsrennsli lítið eða um 0,1 1/s. Þann
5. maí 1977 mældist hæstur hiti 41°C
(Jón Benjamínsson 1980). Árið 1980
fóru jarðfræðingar á vegum Orku-
stofnunar út í skerið með mjög næm-
an hitamæli og mældu 53°C í heitustu
sytrunni (Guðmundur Ingi Haralds-
son munnl. uppl. 1987).
7 Varmavík í Reykhólahreppi. Við
Hákallaströnd er lítil vík sem nefnist
Varmavík. Þar seytlar vatn upp um
glufur í klöpp og útfellingarhellu í
fjörunni. Klappir og hellur eru volg-
ar viðkomu og víða er volgur sjór
við botninn. Vatn í glufum og poll-
um mælist frá 30-38°C heitt og svipað-
ur hiti er á klöppunum. (Jón Benja-
mínsson og Sigmundur Einarsson
1982).
8 Laugaland í Reykhólahreppi.
Jarðhiti er í fjörunni fremst á tangan-
um sem bærinn stendur á. Þar eru 64-
68°C heitar laugar á um 30 m svæði
með fjörunni. Heita vatnið kemur upp
í sprunginni malar- og hnullungabor-
inni útfellingarhellu sem fer í kaf á
flóði. Sums staðar heyrist suðuhljóð
sem líklega stafar af gasstreymi. (Jón
Benjamínsson og Sigmundur Einars-
son 1982).
9 Múli í Kollafirði. Laugasker er
um 100 m úti á vöðlunum niður undan
Pálshjalla og kemur upp úr á hálfu
útfiri. Skerið er útfellingahella blönd-
uð leir og sandi, 400 m2 að stærð og
kemur heitt vatn upp um smáaugu
víða á hellunni. Ein laug er þó vatns-
mest og stendur hæst. Vatnsrennsli er
líklega innan við 0,5 1/s og hitinn mæl-
ist 47-48°C. Á vetrum leggur Kolla-
fjörð oft, en Laugaskerið þíðir af sér
og er þá gjarnan vök út frá því í vestur
yfir fjörðinn, en þar má víða finna
volga pytti sé vaðið berum fótum í
155