Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1988, Side 53

Náttúrufræðingurinn - 1988, Side 53
Helgi Hallgrímsson Ritfregnir Erlendar litmyndabækur um sveppi Það er nú orðin mikil tíska að setja sam- an bækur með litljósmyndum af sveppum, sérstaklega hinum svonefndu matsvepp- um, og skipta þær orðið mörgum hundr- uðum. Hitt er sjaldgæfara, að reynt sé að koma á framfæri með vísindalegum gæða- kröfum myndum af heilum eða verulegum hluta af stórsveppaflóru einhvers lands. Samt koma slíkar bækur á markaðinn af og til, og verður nokkurra þeirra getið hér á eftir. 1. SVAMPAR. EN FÁLTHANDBOK. Svengunnar Ryman á Ingmar Holmásen. Útgefandi: Interpublishing, Stockholm 1984. (718 bls. 1100 litmyndir). Þessi nýja sænska sveppaflóra er á ýms- an hátt til fyrirmyndar og sérstaklega gagnleg okkur Islendingum, þar sem hún birtir myndir af fjölda norðlægra tegunda, sem að jafnaði eru ekki sýndar í litmynda- bókum. Almennt er tegundaúrvalið líka fjölbreyttara en í öðrum sveppamynda- bókum, því allt að þriðjungur myndanna er af eskisveppum og vanfönungum. Myndirnar eru langflestar fremur góðar og hafa prentast vel. Meginhluta þeirra hefur Ingmar Holmásen tekið, en hann hefur getið sér gott orð fyrir náttúruljósmyndun í Svíþjóð, og hefur áður staðið að svipuð- um bókum um fléttur og mosa, er út hafa komið hjá sama forlagi í ritaröðinni „Fált- handböcker." Höfundur texta og teikninga er Sven- gunnar Ryman, safnvörður við grasasafnið í Uppsölum. Bókin inniheldur lýsingar og myndir af rúmlega 1100 tegundum sænskra stórsveppa, en alls er getið um 1500 teg- unda, m.a. í greiningarlyklum, sem fylgja ættkvíslalýsingum. Af mörgum tegundum eru auk þess birt lítil kort yfir útbreiðslu þeirra í Skandinavíu. í tegundalýsingum er getið um smásæ einkenni, auk hinna venjulegu, og oft er vísað í ýtarlegri eða fræðilegri heimildir. Oft er getið um sam- nefni tegunda og skyldar eða líkar tegund- ir í lýsingunum. I lok hverrar lýsingar eru upplýsingar um stað og dagsetningu myndatökunnar, og stækkun eða minnkun sveppsins á myndinni. Þannig hefur þessi litmyndaflóra býsna fræðilegt yfirbragð, og getur notast jafnt almenningi sem fræðimönnum, einnig vegna hins víða tegundaúrvals. Athygli vekur, að engin sérstök grein er gerð fyrir matsveppum í bókinni, og sjaldan er minnst á matargildi sveppanna í tegunda- lýsingum. Þetta kann að vera þáttur í því að losa ntenn við það einhæfa „matargild- issjónarmið“ sem margir virðast vera haldnir, þegar sveppir eru annars vegar, og er vissulega tímabært að sýna fjöl- breytni og fegurð svepparíkisins án slíks leiðarhnoða. Á hinn bóginn er þess að gæta, að í Svíþjóð geta menn valið um eitthvað á annan tug bóka um matsveppi og sveppamatreiðslu, svo af nógu er að taka í því efni. Hönnun bókarinnar og niðurskipun myndanna finnst mér vera til fyrirmyndar, því að jafnaði eru aðeins tvær myndir á síðu, og tegundalýsingar á sömu síðum, undir viðkomandi mynd. Þannig skiljast myndirnar betur að, heldur en þegar myndir eru saman á hægri handar síðum Náttúrufræöingurinn 58 (3), bls. 171-175, 1988. 171

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.