Náttúrufræðingurinn - 1966, Qupperneq 16
166
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
uðina, og flæðigosið, sem hófst þar 4. apríl. En bergkvikan var hin
sama þann dag og hafði verið undanfarið, hiti hennar væntanlega
hinn sami og magn það, sem upp á yfirborð barst á tímaeiningu,
var einnig mjög svipað. Það eina, sem breytzt hafði, var að sjór
liafði verið það stilltur nokkra daga, að hlaðizt hafði breiðari vegg-
ur upp í gígskarðið en áður, svo að hraun náði að fylla gíginn og
þétta barma hans að innan og síðan að utan, er yfir flæddi, og þar
með var sjónum varnað aðgöngu. Hefðu veður verið válynd framan
af apríl og sjógangur mikill, hefði sprengigosið vafalítið haldið
áfram enn um sinn. Sýnir þetta, hve miklu ytri aðstæður geta vald-
ið um hegðun eldgosa.
Það er og athyglisvert, að Surtseyjargosið hófst sem sprungugos,
en breyttist í dyngjugos um kringlótt gosop. Má líklegt telja, að
flest ef ekki öll basaltgos byrji sem sprungugos og að dyngjur okkar
og eldborgir hafi átt fyrstu upptök sín í sprungum, sem breytzt
hafi í kringlótt gosop.
Vöxlur Surlseyjar og Surtseyjarhrauns.
Mynd 7 er gerð af Landmælingum íslands eftir flugmyndum og
sýnir útlínur Surtseyjar á mismunandi tímum frá því er fyrstu flug-
myndirnar í landmælingaskyni voru teknar af eynni 17. febrúar
1964. Flatarmælingar byggðar á þessari mynd og 8. mynd mega
teljast næsta öruggar. Eru þær flatarmælingar af eyjunni í heild
gerðar hjá Landmælingum, en ég hef mælt flatarmál hrauns. Þessar
tölur eru teknar upp í Töflu I. Tölurnar innan sviga hef ég byggt
á þeirri staðreynd, að ekkert hraun rann ofansjávar frá apríllokum
til 9. júlí 1964 og hraunrennsli hætti í Surtsey 17. maí 1965. Hvað
snertir flatarmælingar fyrir 17. febrúar 1964, þá eru þær byggðar
á sextantmælingum á lengd og breidd eyjarinnar, gerðum á varð-
skipunum, og vitneskju minni um lögun eyjarinnar, byggðri á tíðri
ijósmyndatöku. Þessar flatarmálstölur eru vitanlega fjarri því að
vera eins nákvæmar og hinar, en munu þó ekki mjög fjarri lagi.
6. mynd. Dæmigert sprengigos í Syrtlingi kvöldið 24. ágúst 1965. 1. litlar, 2.
miðlungs, 3. stórar sprengingar, 4. næstum sígos, 5. sígos, 6. engar athuganir
gerðar. — Typical explosive (phreatic) activity in Syrllingnr August 24, 1965.
1. Small, 2. Medium size, 3. Big explosions, 4. Nearly conlinuous uprush, 5.
Continuous uprush, 6. No observations.