Náttúrufræðingurinn - 1966, Blaðsíða 48
194
NÁT T Ú R U F RÆ ÐINGURINN
gosmekkir stigu upp frá gígnum og eldingar sáust einstöku sinnum
með tilheyrandi braki í móttökutækjum skipsins. Síðan færðist
gosið mjög í aukana og endaði með sígosi, þar sem svartur ösku-
strókur þeyttist án afláts upp úr gígnum í lieilan klukkutíma.
Þetta hafði mjög örvandi áhrif á eldingarnar, sem komu með svo
sem einnar mínútu millibili þegar mest var. Skipið var þá undir
jaðri öskuskýsins, en nú bregður svo við, að truflanirnar í útvarp-
inu eru ekki aðeins samfara eldingunum, heldur heyrist stöðugt
snark eða hviss í nokkurn tíma á undan hverri eldingu, en hættir
skyndilega þegar eldingin kemur. Allt bendir til að hér sé um að
ræða kórónustraum, líklega frá loftnetinu sjálfu eða öðrum hlutum
skipsins, sem veldur truflunum í móttökutækjunum. Kórónu-
straumar myndast þar, sem leiðandi oddar eða skarpir kantar eru
í sterku rafsviði, og bendir þetta til þess að skipið sé í vaxandi
rafsviði fyrir hverja eldingu, sem hverfur svo eða minnkar mikið
við eldinguna.
Hreyfingin í efri liluta gosskýsins er rnjög áþekk því, sem gerist
í þrumuskýjum, svo að ætla má að sömu orsakir geti framkallað
eldingar í báðurn þessum tilfellum. Annars eru menn ekki á eitt
sáttir um, hver sé frumorsök eldinganna í venjulegu þrumuskýi,
en á einhvern liátt skiljast rafhleðslur að, þannig að efri hluti
skýsins fær jákvæða rafhleðslu, en neðri hlutinn neikvæða. Sumir
telja að aðgreiningin eigi sér stað þar, sem vatnsdropar og frosið
hagl þyrlast saman í uppstreymi skýsins. Eftir snertingu við liaglið
fái hinir smágerðu vatnsdropar jákvæða rafhleðslu og berist upp
með skýinu, en haglið flytji neikvætt rafmagn niður.
Nú er það engan veginn svo, að eldingarnar séu bundnar við efri
hluta gosskýsins, heldur eru þær sérstaklega áberandi neðantil í
gosmekkinum og eiga oft upptök sín undir hinu eiginlega gosskýi.
Jafnvel smá gosstrókar, aðeins nokkur liundruð metra háir, geta
sent eldingu til jarðar broti úr mínútu eftir að þeir spýtast upp úr
gígnum. Eldingar þessar, þótt smáar séu, sýna að í gosmekkinum
fer fram mjög 11 jótvirk aðgreining á rafhleðslum, enda þótt hér
sé engu hagli til að dreifa. Ef til vill getur þó gossandurinn kornið
í stað haglsins.
í febrúar 1964 komu hingað bandarískir eldingasérfræðingar
frá Arthur D. Little félaginu, hafrannsóknastöðinni í Woods Hole
og rannsóknastöð Bandaríkjaflota í Washington. Höfðu þeir með