Náttúrufræðingurinn - 1966, Side 39
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
185
efnagreining hafði verið gerð á þessu gasi kom í ljós, að hér liafði
íengist sýnishorn af gasi án nokkurrar íblöndunar andrúmslofts og
líklega betra sýnishorn en áður hafði tekizt að afla við eldstöðvar.
Efnasamsetningin að vatni fráskildu reyndist vera brennisteins-
dioxyð, vetni og koldioxyð, með litlu magni af kolmonoxyði, köfn-
unarefni og argon, en auk þess klorvetni og brennisteinsgufa.
Ástæðan fyrir þessum sérstöku aðstæðum var augljós. Um nokk-
urn tíma liafði hraunið runnið að mestu frá gígnum eftir neðan-
jarðarrásum eða hraunhellum. Staður sá, sem gasútstreymið fannst
á, var um 50 m, sunnan við gígbrúnina, og gasið kom upp um rifu á
liellisþaki, en undir streymdi fram mikil hraunelfur. Gasið frá
hrauninu lokaðist inni í hellinum og leitaði út um sprungur á
hellisþakinu undir allmiklum þrýstingi.
í þeim ferðum, sem farnar voru eftir þetta, var leitast við að finna
aðstæður, sem líktust því, sem lýst var hér að ofan. Nauðsynlegt
reyndist í síðustu ferðunum að vinna ofan í gígnum, en þar tókst
að ná a. m. k. einni prufu, sem var sambærileg við sýnishornin frá
15. okt. Óhætt er að segja, að árangur þeirra tilrauna, senr gerðar
voru til gassöfnunar, hafi orðið mun meiri en hægt var að gera sér
vonir um í byrjun.
Allmikið myndaðist af söltum og útfellingum á ýmsum stigum
gossins. Unnt er að greina þessi efni í tvo Llokka eftir jrví livort
þau mynduðust vegna uppgufunar vatns úr sjóblautri ösku, eða
hvort um útfellingar úr lofttegundum var að ræða. Fljótlega eftir
að öskugosi linnti settist livít skán á hlíðar öskukeilunnar. Þetta
hvíta efni var að mestu natriúmklórið. Eftir að hraungos byrjaði
bar hins vegar mest á gulum og gulgrænum litum. Úr fjarlægð
var svo að sjá sem allt hraunyfirborðið væri mosavaxið. Magn þess-
ara útfellinga var mjög mikið og mun meira en myndaðist í Öskju-
gosinu 1961. Einkum bar mikið á útfellingum á fyrstu vikum og
mánuðum hraungossins, en er á leið voru þær síður áberandi. Gul-
græni liturinn stafaði einkum af salli er nefnist aftatelit eða
gleesit, en það er natrium kalium súllat. Einnig mynduðust önn-
ur súlföt og hreinn brennisteinn.
jimi Á j.
Bergfrœði.
í tímariti þessu hefur til þessa lítið verið fjallað um bergfræði og
því ekki hægt um vik að skýra frá bergfræðilegum athugunum, því