Náttúrufræðingurinn - 1966, Side 41
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
187
og glers í berginu, og samanburði margra sýnishorna er unnt að
sýna í hvaða röð kristallarnir falla út og eins er mögulegt að finna
hve mikill vcikvi (gler) er eftir þegar ákveðin kristaltegund byrjar
að falla út.
Eins og getið var um hér að ofan voru einu kristallarnir í fyrsta
gosefninu plagioklasar og olivinar. Síðar hurfu plagioklasarnir en
olivinarnir urðu einir eftir og jukust að magni er á leið gosið. Sú
skýring, sem virðist í beztu samræmi við þessar breytingar á gos-
efnunum er í aðalatriðum þessi: Áður en gos hófst í Surtsey var
kristöllun hafin í kvikuþrónni. Fyrstu kristallarnir, sem féllu út
voru olivinar. Þessir kristallar eru samsettir úr járni, magnium og
kísilsýru og því eðlisþyngri en vökvinn, sem þeir falla út úr. Þessir
kristallar falla því hægt og hægt til botns í þrónni, en við það breyt-
ist heildarsamsetning efnisins í efri hluta þróarinnar. Vökvinn
verður smám saman fátækari af járni og magnium, unz hann hefur
náð þeirri efnasamsetningu, þar sem plagioklas og olivin byrja að
falla út saman. Plagioklas er hins vegar aðeins eðlisléttari en vökv-
inn og kristallarnir fljóta upp í efri hluta þróarinnar. Á þessu stigi
hefst gosið og fyrstu gosefnin innihalda plagioklas og olivin. Eftir
því sem meira gengur á efnið í þrónni verður það sífellt olivinrík-
ara en plagioklasarnir hverfa.
Nú kynni einhver að spyrja hvort bergið í Surtsey líkist ekki
því efni, sem komið hefur upp í eldgosum síðari tíma á íslandi. Því
er til að svara, að þetta berg er gjörólíkt öllum Öskjuhraunum og
við Heklu á það ekkert skylt. Það er líkara Kötlu og Eldgjá, en
hefur þó ákveðin sérkenni, sem skipar því í annan flokk. Við get-
um því ekki dregið Surtsey í dilk með neinu nálægu eldfjalli, og
því ekki hægt að segja að hún hafi kvikuþró sameiginlega með öðru
eldfjalli á meginlandinu.
Að lokum ber að leggja á það áherzlu, að sú vinna, sem hefur
verið framkvæmd vegna Surtseyjargossins á þessari stofnun er hóp-
vinna eins og getið var í upphafi. Tilgangur þessarar greinar er að-
eins sá, að sameina í mjög almennu yfirliti frásögn af því, sem
gert hefur verið, en vísindalegar skýrslur um niðurstöður rann-
sóknanna verða birtar á öðrum vettvangi.