Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1966, Blaðsíða 51

Náttúrufræðingurinn - 1966, Blaðsíða 51
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 197 merkin um slíka upphium á stóru svæði eru hitamælingar, sem gerðar voru daginn áður en gosið sást fyrst, en þá mældi síldar- leitarskip 9,4°C þrjá til fjóra kílómetra suðvestur frá staðnum, þar sent gosið kom upp sólarhring síðar. Annars var sjávarhitinn á þessu svæði um 7°C. Sjómenn þeir, sem fyrstir sáu gosið, mældu einnig sjávarhitann, og reyndist hann 11°C um 700 m frá gosinu A rneðan öskugosið stóð, varð aldrei vart neinnar upphitunar í sjónum. Á þessu tímabili sendi Fiskideild Atvinnudeildar Háskól- ans fjögur rannsóknaskip á gosstöðvarnar, sem mældu sjávarhit- ann allt frá 300 m fjarlægð frá eyjunni, en hvergi varð vart við óeðlilega hátt hitastig. í apríl 1964 varð rannsóknaskip vart við 0,5° upphitun um 700 m austan við Surtsey, en þá var hraunið tek- ið að renna í sjóinn. Engin ítarleg mæling var gerð á sjávarhita, þar sem hraunið rann í sjó, en einstakar mælingar gáfu allt að 40°C nokkra metra frá hrauninu. Þegar þetta var mælt, var lítil alda og flaut heita vatnið í þiinnu lagi ofan á kaldari sjó. Volgur sjór, sem gufu lagði upp af, sást stundum nokkur hundruð metra út frá stöðum þar, sem hraun rann í sjó. Hitamælingarnar sýna að neðansjávargos liita upp hafið á með- an þau hafa ekki náð upp til yfirborðsins. Væntanlega stígur all- heitur sjór til yfirborðsins beint upp af gosstaðnum með hækkandi hitastigi eftir því sem hraunkvikan nálgast yfirborð sjávar. Þegar hitinn hefur náð 100° fer sjórinn að sjóða og gosið verður sýnilegt á yfirborðinu. Eftir að gígur myndast er hafið einangrað frá hin- um heitu gosefnum. Sjór rennur að vísu inn í gíginn, en hann guf- ar þar upp og gosið hitar nú upp andrúmsloftið en ekki hafið. Á ferðum sínum við Surtsey söfnuðu rannsóknaskipin sjávarsýn- ishornum til efnagreininga, og helur Unnsteinn Stefánsson unnið úr þeint gögnum, en grein um áhrif gossins á næringarefnainni- liald sjávar er í prentun (Stefánsson 1966). Með tilraun í rannsókna- stofu sýnir Unnsteinn fram á, að bæði fosfór og kísill leysast upp úr gosöskunni ef hún fellur í sjó. I sjávarsýnishornunum er það þó fyrst og fremst kísilmagnið, sem vitnar um návist gossins, og gætir áhrifanna 10—20 km út frá gosstöðvunum. Áætlað er að um 30 kg af kísil leysist upp á sekúndu í byrjun gossins, líklega aðallega úr öskunni, sem fellur í sjóinn, en ef til vill einnig úr hraunkvikunni á meðan hún er neðansjávar. Eftir að öskugosið hættir, dregur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.