Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1939, Side 22

Náttúrufræðingurinn - 1939, Side 22
16 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN merkja), höfðu vaxið upp í deplu- og jafnvel bleikjustærð, þegar þær endurveiddust. f því, sem merkingarmennirnir merktu sem murtu, hefir með öðrum orðum verið nokkuð af ungri bleikju. Þá er fyrst að athuga, hvort eigi geti verið eins ástatt með þá murtu, sem eg hefi rannsakað. Tafla nr. 6 sýndi okkur, að aðeins 3.9% af murtunni, sem eg rannsakaði var ókynþroska, en 96.1 % var þó að minnsta kosti kynþroska murta. Nú verður að taka tillit til þess, að ef murtan er ung bleikja, sem hrygnir bæði á æskuskeiði og á fullorðinsárum, þá er þar að ræða um einstætt fyrirbrigði í ríki fiskanna. Ennþá einstæðara væri þó hitt, og reyndar með öllu óskiljanlegt, ef nokkuð af þeim fiski, sem alveg áreiðanlega er murta, þ. e. kynþroska smásilungur, væri sérstakt afbrigði, sem aldrei yrði stærra, en nokkuð ung bleikja, sem ætti fyrir sér að hrygna aftur sem riðableikja. Slíkt getur að mínum dómi ekki komið til mála. Annað hvort er öll hrygnandi murta sérstakt af- brigði, eða ekkert af henni. Aðeins sá fiskur, sem kallaður er murta, en ekki er kynþroska, gæti þá komið til mála sem ung bleikja. En af allri murtunni nemur þessi fiskur aðeins 3.9% eítir fjölda, og er svo nauðalíkur murtu, en frábrugðinn bleikju, að eríitt er að hugsa sér annað en að þar sé að ræða um murtu, aðeins ókynþroska. Eg verð því, áður en lengra er farið, að halda því fram, að ekkert sé af ungri bleikju í þeirri murtu, sem eg hefi rannsakað, nema ef vera skyldi þessar 3.9%, og nema ef vera skyldi, að öll murtan væri ung bleikja. Þetta atriði, megin- kjarna málsins, skulum við nú virða fyrir okkur nánar, og kveða fram þau vitni, sem dómbær eru í málinu. 1. Hryggjarliðafjöldinn. Við skulum fyrst bera hryggjarliða- fjöidann í allri þeirri murtu, sem rannsökuð hefir verið með til- liti til þessa eiginleika, saman við hryggjarliðafjöldann í fullorð- inni bleikju. Síðan getum við borið saman murtu og ungbleikju, og borið ókynþroska murtu bæði saman við stórbleikju og ungbleikju. I 1356 murtum, sem rannsakaðar voru, reyndist hryggjarliða- fjöldinn 63.09 + 0.03, en í 203 bleikjum reyndist hann 62.75 + 0.05. Það er því munur á hryggjarliðafjöldanum í murtu og stórbleikju, og þessi munur er : 63.09 — 62.75 = 0.34, eða meiri en munurinn á vorgotssíld og sumargotssíld. Murtan hefir því um 1/3 úr hryggj- arlið að meðaltali meira en bleikjan. Önnur spurning er það, hvort þessi mismunur er nægilega stór til þess að skipa murtunni á sér- stakan bekk, gera hana að sérstöku afbrigði. Til þess að skera úr því, verðum við að beita reikningsaðferðum, sem ekki er hægt að

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.