Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1939, Page 26

Náttúrufræðingurinn - 1939, Page 26
20 NÁTTÚRUFRÆÐINGURlNN lllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll>llllllll*(>lltlltllllltllllt Lengd cm. 6. mynd. Vaxtarhraði á murtu (S. alp. f. murta), bleikju (S. apl. f. typica) og urriða (S. trutta) úr Þingvallavatni, eftir aldursákvörðunum próf. K. Dahls, á fiski, sem veiddist árið 1914. (B. Sæm. 1917, bls. 127). ári, frá því hreistrið myndaðist og þangað til hann var veiddur. Við skulum nú fyrst bera saman vaxtarhraðann á murtu, sem var veidd í Þingvallavatni árið 1914, og bleikju, sem var veidd þar haustið áður. Ef við lítum á 7. töflu sjáum við strax, að vöxtur- inn fylgist alveg að þangað til á fjórða ári, þá fer murtan að dragast aftur úr. Á 4. ári er bleikjan orðin 0.5 cm. lengri, þar fer að byrja að draga í sundur, en á 5. ári er munurinn orðinn 2.8 cm. Lengra nær ekki þessi samanburður, af því að elzta murtan var aðeins fimm vetra, en elzta bleikjan var 10 vetra, og það sést af töflunni, að hún hélt áfram að vaxa með hér um bil sama hraða allt fram að þeim aldri, þótt murtan stæði í stað. Af töflu 4 sáum við, að murtan vex árlega mjög lítið, eftir að þessum aldri

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.