Náttúrufræðingurinn - 1939, Side 28
22 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
11111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111
flærnar hafa langmesta þýðingu, sem fæða fyrir murtuna sem og
krabbaflærnar, þótt þær geri ekki nema hlutfallslega 18.8%
(Daphnia longispina) og 4.2% (Cyclops sternuus) af fjöldanum.
Loks ber talsvert á krabbadýra-eggjum, 14.0%, líklega úr krabba-
flóm. —
8. fafla. Árangur af magarannsóknum á bleikju og murtu.
Heimkynni Tegund íœðu: Fjöldahlutfall fæðutegundanna:
fœðu: í bleikju: í murtu:
Toppmý-lirfur: 77.0%
Við botn: Blágrænbörungar: 18.7%
Vatnabobbar: 3.5%
Vatnaskeljar: 0.5%
Eggberar aí vatnsílóm: 0.3% 42.1 %
Uppi í Egg úr vatnsílóm: 20.9 %
vatni: Vatnsflœr: 18.8 %
Egg úr krabbaflóm (?): 14.0%
Krabbaflær: 4.2%
Samtals: 100.0% 100.0 %
Mataræði murtunnar og bleikjunnar er svo ólíkt, að auðsætt
virðist að hvor þeirra hafi samið sig að sínum sérstöku lifnaðar-
háttum. Ef við gengjum á móti þeim röksemdum, sem að framan
hafa verið tilgreindar, og héldum því fram, að murtan væri ung
bleikja, gætum við ef til vill sagt, að þessi munur á mataræði
stafaði af því, að tegundin stæði á mismunandi þroskastigi sem
murta og sem bleikja og neytti þá mismunandi fæðu. Hjá mörgum
sjávarfiskum er einmitt slíkt vel kunnugt. En hér er því til að
svara, að murtan og bleikjan, sem rannsökuð voru, voru veidd
á sama stað, og höfðu því í svipinn sömu skilyrði til þess að afla
sér sömu fæðu. — Á hinn bóginn byggist mismunandi mataræði
á mismunandi aldri hjá öðrum fiskum fyrst og fremst á því, að
tegundin lifir á mismunandi stöðum eftir aldri. í öðru lagi getum
við minnt á svart-murtuna, sem síðar skal verða getið. Hún er á
stærð við murtu, og lifir þarna innan um bleikju og murtu. Sam-
svarandi rannsóknir á mataræði hennar hafa sýnt, að hún lifir
eingöngu á botnfæðu, eins og bleikjan, en ekki á sviffæðu, eins og
murtan. Hið mjög mismunandi mataræði murtu og bleikju mælir
því með því, að hvor um sig hafi farið sínu fram og lifi óháð hinni.
Murtan hefir sínar lífsvenjur og bleikjan sínar. Og báðar halda