Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1939, Page 38

Náttúrufræðingurinn - 1939, Page 38
32 NÁTTÚRUFRÆÐINGURÍNN 11111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111 og blöð. Enn seinna kemur svo blómgunin, skömmu síðar frjóvg- unin og síðast fræþroskinn. Þýzki grasafræðingurinn Klebs, sem var sérfræðingur í lífeðlis- fræði jurtanna, sannaði árið 1904, að hin fyrnefndu skeið geta ekki hafizt hvort um sig, nema eftir vissa ertingu ytri áhrifa. Og með því að breyta hinum ytri aðstæðum á ýmsan hátt, tókst hon- um að breyta- þroska tilraunajurtanna, ýmist hraða honum eða seinka. Hann leiddi meðal annars í ljós, að hægt er að skipta þró- un jurtarinnar milli vaxtarskeiðsins og blómgunarskeiðsins í þrjú stig: hið fyrsta er hæfilegur þroski til að blómgun geti hafizt, annað er myndun blómavísa og hið þriðja þroskun blómanna þar til þau opnast. Til að fyrsta stiginu verði fullnægt fljótt, þarf jurtin að hafa lágan hita og sterkt ljós, annað stigið krefst dauf- ara ljóss sem lengstan tíma á sólarhring og hið þriðja gengur bezt við mjög lítið ljós. Rússinn Cassner hefir reynt að stytta vaxt- artíma haustkornsins þannig, að allur þroskinn geti orðið á einu sumri í stað þess að venjulega þarf kornið að liggja yfir vetur- inn í jörðinni eftir sáningu að hausti. Þar eð haustkornið þarf að fá kuldaskammt á hinu svonefnda þúfustigi (þ. e. a. s. áður en stráin myndast), til að geta myndað axbær strá, áleit Cassner, að ef haustkorn væri látið spretta lítið eitt, en síðan sett í 1° C. kulda og sáð að vorinu, væri hægt að fá það til að bera fullþrosk- uð öx sama sumar. En við allar þær tilraunir, er gerðar hafa ver- ið á þessum grundvelli, hefir komið í ljós, að jurtirnar geta aðeins borið fullþroskuð öx, ef sáð er mjög snemma að vorinu, þegar kuldinn er nægilega mikill til að verka mjög á hið nýsprottna korn, — en þá frýs líka meginhluti þess út yfir takmörk lífsins. Rússneskur vísndamaður tók eftir því árið 1928 við tilraunir sínar með hausthveiti, að ef útsæðið var vætt og látið liggja rakt í hér um bil 0° C. í tvo mánuði, bar hausthveitið fullþroska öx sama sumar, ef sáð var að vori til, en svipað hafði þá um líkt leyti komið fram við tilraunir annara í öðrum löndum heims. En það var þó ekki fyr en árið 1932, að lýðum veraldarinnar var gert ljóst, að ný aðferð hefði fundizt til styttingar vaxtartíma jurtanna, og það aðferð, sem gefur góðar vonir um ágætan árang- ur við stórrekstur, ef allt gengur jafn vel og útlit er fyrir nú, samkvæmt tilraunum og framkvæmdum Sovét-vísindanna í grasa- fræði. Sú aðferð gengur undir nafninu „jarovisation“ (jaroviza- cija). Það orð er rússneskt að uppruna og hefir verið þýtt á ensku

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.