Náttúrufræðingurinn - 1939, Page 42
36 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
..........................
þarf vorunin að fara fram í myrkri. Þar eð hinar síðarnefndu
eru auk þess ættaðar frá heitari löndum, þurfa þær oftast hærri
vorunarhita en langdagsjurtirnar.
3. mynd. Hausthveiti. Öllu sáð að vori, með útsæði frá sama stofni, en ræktað
á mismunandi stöðum. A er frá Hibiny, vorað í 20 daga. B frá Hibiny, óvorað.
C frá Kirovobad, vorað í 20 daga. D frá sama stað, óvorað. (Eftir Kostju-
cenko og Zarubailo).
Hvernig er unnt að væta kornið svo mjög og geyma það rakt
svona lengi, án þess að það skemmist eða eyðileggist af myglu og
öðrum sveppum? Ekkert væri eðlilegra en það, því að flestir
munu þekkja, hve fljótt rakt korn myglar í heimahúsum og hve
oft útsæði eyðileggst af sveppum í moldinni. En fyrir vorunar-
aðgerð er aðeins bezta útsæðið nógu gott. Auk þess þarf að vera
hægt að láta loft leika um það öðruhvoru, meðan vorunin stendur
yfir, og í þriðja lagi þarf að sótthreinsa kornið og gólfið, áður
en það er vætt, ef öryggið gegn sveppum og sýklum á að vera svo
tryggt, sem unnt er tryggast nú á dögum.
Til gamans getum við litið lauslega á voranir á kartöflum, sem