Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1939, Page 49

Náttúrufræðingurinn - 1939, Page 49
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 43 ....................Illlllllllllllllllllllllllllllllllll... Skarfur ungar út æðareggjum. 2. júní í vor var ég sjónarvottur að því einkennilega fyrirbrigði, að í skarfshreiðri hér í hólma skammt frá landi voru 5 æðaregg. Toppskarfur lá á eggjunum og virtist una hag sínum hið bezta. Hreiðrið var þar í hólmanum, sem mætist gras og grjót. Enginn dúnn var í því, og að öllu leyti var hreiðrið eins og venjulegt skarfshreiður — allstór dyngja af þangi og þarablöðum, bæld og skitin. 2. júní máttu eggin heita ný, sást aðeins móta fyrir „augum“ í þeim. 12 dögum seinna kom ég aftur í hólmann. Sat þá skarfur- inn enn á eggjunum og voru þau þá orðin allmikið unguð og virt- ist útungunin ganga mjög líkt hjá honum og æðarkollunum í grenndinni. 8 dagar liðu, og kom ég þá enn í hólmann, og var þá hreiðrið tómt, ungarnir skriðnir úr eggjunum — en skarfurinn flögraði fram og aftur um nágrennið og virtist ekki vera sérlega ánægður. Það mun ekki mjög erfitt að geta sér til um, hvernig á þessari ásetu skarfsins hefir staðið. — Um reglulegt „hjónaband" milli skarfsins og æðarkollunnar mun ekki geta verið að ræða, og sízt þegar eggin unguðu eðlilega. Æðarkollan hefir vitanlega orpið þarna í þanghrönnina, eins og gerist og gengur, en skarfurinn síðan komið og rænt hana hreiðrinu, lagst á eggin og dregið síð- an undir sig þang og þara, þangað til honum þótti hreiðrið við sitt hæfi. Útungunin virðist hafa gengið að óskum. En hvernig skarfinum hefir orðið við, þegar ungarnir skriðu úr eggjunum dúnmjúkir, alsjáandi og fjörugir, og hlupu út undan honum í ail- ar áttir, er ekki gott að segja. Skarfsungar og æðarungar eru mjög ólíkir að útliti, þegar þeir fæðast, og eðlið og uppeldið gerólíkt. Vesalings skarfurinn hefir því ekki við neitt ráðið, þegar ungarnir komu úr eggjunum, og því annaðhvort látið þá „synda sinn sjó“ þegar í stað, eða þá, sem líklegra er, launað þeim óþægðina með því að éta þá. Skarf mun- ar ekki um að renna niður nokkrum æðarungum, ef svo ber undir. En svo virðist, sem skarfurinn hafi ekki getað trúað sínum eig- in augum og ekki getað fellt sig við, að uppeldinu í hreiðrinu væri lokið um leið og ungarnir skriðu úr egginu, því að þannig er ekki uppeldinu hagað til í skarfabyggðinni, og því hafi hann verið á flökti kringum hreiðrið, þó að ekkert væri í því.

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.