Náttúrufræðingurinn - 1939, Síða 51
náttúuufræðingurinn 45
iiliiiiimiimiiiiimiiiiiimiiiiiMiiiiiiMiiiimiiiiiiiiiiiiiimmmiMiiiiiiiimiiimiiiiimiiiiiiimiimiililiiiiiuimmiimmiiimiimii
Litli hrossagaukur (Limnoeryptes minimus (Briinn.)).
(Úr Danmarks Fauna.)
ig til Bretlandseyja og Færeyja) og suSur um alla Asíu og til
Norður-Afríku.
Litli hrossagaukurinn er mjög svipaður hrossagauknum, en er
þó auðþekktur frá honum á stærðinni (hann er meira en þriðj-
ungi minni) og á því að nefið er hlutfallslega styttra og að stél-
fjaðrirnar eru aðeins 12 (á hrossagauknum venjulega 14). Stélið
er auk þess fleyglagaðra en á hrossagauknum, og miðstélfjaðr-
irnar 2 eru töluvert lengri en hinar stélfjaðrirnar og mjóyddar,
en á hrossagauknum eru þær ekki lengri og snubbóttar. Sama er
að segja um ytri armflugfjaðrirnar. Á litla hrossagauknum eru
þær mjóyddar, en á hrossagauknum snubbóttar. Á svarta litinn
á litla hrossagauknum ofanverðum slær ennfremur grænni eða
purpurarauðleitri málmslikju, sem ekki ber á á hrossagauknum.
Litli hrossagaukurinn er mýra- og votlendisfugl. Hann heldur
sig helzt í mýrum og flóum með vatnsrásum og pyttum, einkum
þar sem einnig er víði- eða birkikjarr. Aðalfæðan eru skordýr,
ormar og sniglar. Eggin, sem eru 4, eru tiltölulega mjög stór í
samanburði við stærð fuglsins, aðeins lítið eitt minni en hrossa-
gauksegg og mjög svipuð þeim að lit. Hvað lifnaðarhætti snertir
er annars yfirleitt það sama að segja um hann og hrossagaukinn.
Litli hrossagaukurinn er á ensku kallaður Jack Snipe, á þýzku
Kleine Bekassine, á dönsku Enkelt Bekkasin, á norsku Kvart-
bekkasin og á sænsku Halfenkel beckasin. Finnur Guðmundsson.