Náttúrufræðingurinn - 1941, Blaðsíða 87
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
81
dæmis nefna: Rifni-hnjúkur, Heiðin-há, Fjallið eina o. s. frv.
Ekki þarf nema einn gikk í hverri veiðistöð. Þessi nafngift,
sem verður til alveg ósjálfrátt, veldur sennilega því, að farið er
að kalla voldugustu hraunbungu landsins, Skjaldbreið í Ódáða-
hrauni, Trölladyngju. Lengra er þróunin ekki komin, þegar Thor-
oddsen kemur til skjalanna, en hann staðhæfir, að það sé mál-
venja í Þingeyjarsýslu að nefna þessi bungumynduðu eldfjöll
dyngjur. í ferðabók sinni segir hann (Ferðab. I. bls. 284): „Þing-
eyingar kalla öll þau eldfjöll, sem hafa sömu lögun og Skjald-
breið, dyngjur.“
Sannleikurinn er sá, að áður en Thorcddsen hefur rannsóknir
sínar í óbyggðum Þingeyjarsýslu, er aðeins búið að festa dyngju-
heitið á Kollóttu-dyngju og Trölladyngju að nokkru leyti.*) Hins
vegar eru þar þá nokkur eldf jöll, af þessari gerð, með öðrum nöfn-
um, svo sem: Þeistareykjarbunga, Veggjabunga og svo grágrýt-
isdyngjurnar Grjótháls og Vaðalda. Sú málvenja að nefna þess-
ar bungur dyngjur, hefir því verið ný, þegar Thoroddsen kemur
þangað, en Thoroddsen gefur að minnsta kosti 4 af þessum hraun-
bungum nöfn: Kerlingardyngju, Ketildyngju, Skuggadyngju og
Skjaldböku, síðan tekur Spetmann við og býr til nöfnin: Flata-
dyngja, Svarta-dyngja og Litla-Dyngja og þar með hefir dyngju-
heitið að fullu og öllu skipt um merkingu.
Þetta ætti að nægja til þess að sýna, að forsendur Thoroddsens
fyrir því, að Trölladyngjugosin hafi ekki verið í Ódáðahrauni,
geta eigi staðizt. Trölladyngja hefir þó líkí'ega ekki gosið eftir
að sögur liófust, en Trölladyngjur, þ. e. Dyngjufjöll, hafa vafa-
laust gosið oft eftir að landið byggðist.
Þótt það sé merkilegt, að Thoroddsen skyldi ekki sjá þetta,
þá er það ennþá furðulegra, að Jónas IJallgrímsson, sem vissi
að Dyngjufjöll voru sama og Trölladyngjur, skuli fullyrða, að
öll Trölladyngjugosin hafi verið á Reykjanesi. Þessa niðurstöðu
reynír hann að byggja á frásögnum annálanna af gosunum, en
tekst ákaflega óhönduglega og virðast mér rök hans stundum
sanna alveg hið gagnstæða. Vil ég nú rekja ummæli annálanna
um þessi gos og draga af þeim þær ályktanir, sem auðið er.
1. Árið 1151 er í fyrsta sinn getið um gos í Trölladyngjum (Isl.
ann.). Frásögnin er mjög stuttorð og hljóðar svo: „Eldur í
Trölladyngjum. Húsrið og mannskaði.11
*) Líklega hefir þó líka verið til nafnið Katladygnja á Kerlingar-
dyngju.