Náttúrufræðingurinn - 1941, Side 95
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
89
ÞÓRHALLUR BALDVINSSON:
SJALDGÆFT FIÐRILDI
Mér hefur borizt bréf um fiðrildi, sem finnandinn lýsti og
taldi útlendan slæðing. Fer hér á eftir kafli úr bréfinu. Sam-
kvæmt lýsingunni er ekki vafi á því, að hér er að ræða um gull-
fiðrildi, eins og Þóroddur Guðmundsson hefur nefnt það (Agrostis
(eða Rhyacia) pronubis). Auk þess barzt okkur fiðrildi Þórhalls
Baldvinssonar í hendur og gátum sannfærst um, að þar var að
ræða um þessa tegund.
,,Hinn 25. þ. m. var ég staddur inni á svonefndu Barðanesi í
Skilmannahreppi hér í Borgarfjarðarsýslu og gekk þar með
sjávarfjöru neðan við um 3 m háa kletta. Sé ég þá allt í einu
í bergskoru rétt hjá mér, að stórt fiðrildi flögrar þar fram og
aftur, en sezt öðru hvoru á bergið. Ég nem staðar og virði dýrið
fyrir mér um stund, þykir það furðu stórt og fagurt að lit, bleikt
eða dökkgult að mestu með þverrönd svarta (sem laufaskurð)
aftast á vængjunum, og hugsaði mér strax að gjöra tilraun til
þess að ná því, svo sérkennilegt þótti mér það. Þegar ég svo sé
að það sezt og hefur setið á berginu stutta stund, tek ég hatt
minn, læðist með hann í hendinni nálægt þeim stað er fiðrildið
var, og hvolfdi honum yfir það. Fer svo með höndina undir hatt-
inn og næ þessu litla dýri í lófa minn. Hafði ég þá ekki aðstöðu
til að skoða það þar á staðnum, en setti það í dós þá, er það er enn
í, og sem hér með fylgir. Þegar heim kom skoðaði ég fiðrildið,
lét það aftur í dósina og hjá því brauðmylsnu vætta í vatni.
Nú, þegar ég skrifa þessar línur, sem er að kvöldi 27. sept., þá
lifir fiðrildið góðu lífi og ég lofaði því að fljúga um herbergið
mitt um stund, og flaug það þá einkum kringum rafmagnsljósið
marga hringi. Nú set ég það aftur í ,,fangelsið“ og loka. Loftgat
hefi ég á dósinni.
Þar eð ég þekki ekki fiðrildi þetta, leyfi ég mér hér með að
senda yður það með tilmælum um að þér gjörið svo vel og upp-
lýsið mig um nafn tegundarinnar, annað hvort með nokkrum
línum í bréfi eða þá í Náttúrufræðingnum, sem ég alltaf tek með
óblöndnum fögnuði og tilhlökkun,