Náttúrufræðingurinn - 1941, Blaðsíða 98
92
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
ÞÓRODDUR GUÐMUNDSSON frá Saiicti-.
EIÐAHÖLMI
Þegar ekið er veginn út Fljótsdalshérað frá Egilsstöðum, sést
á vinstri hönd vatn, sem lætur lítið yfir sér. Út í það ná ýmsir
tangar og nes með víkum á milli. Þetta er Eiðavatn.
Umhverfis það eru móar, mýraflákar og ásar. Ásarnir eru
grasivaxnir hið neðra með vallgróðurbrekkum og hvömmum. En
að ofan eru þeir á köflum berar klappir, heflaðar af ísaldarjökli
eða huldir möl og leir.
Á þessu landi óx hinn forni Eiðaskógur, þegar „land allt var
skógi vaxið að húsum heim“ á Eiðum, ,,og mátti hvergi sjá
mannaferðir," svo sem segir í Fljótsdælasögu.*) í þessum sama
skógi gerðist sagan af Jóni á grænum kjól, eða örlagaríkasti
þáttur hennar, því í Fiskilækjarskógi, vestan Eiðavatns, drap
Jón Sigfús leikbróður sinn, af því hann varð Jóni hlutskarpari í
ástamálum.**) Hvílir yfir nafni skógarins einu saman dulmagn-
aður æfintýrablær. — En Eiðaskógar sjást nú litlar menjar,
nema örsmáir viðarteinungar, sem fénaður bi'tur jafnharðan og
þeir vaxa, og kolagrafir víðsvegar umhverfis vatnið. Sýnir
þetta tvennt, hvað ráðið hefir úrslitum um afdrif skógarins. Á
einum stað eru þó glæsilegar eftirstöðvar hins forna skógar.
Þær eru í Eiðahólma,
Eiðahólmi er um 3 dagsláttur að stærð. Undirstaða hans er
bergás, sem stendur upp úr vatninu. Hann er þakinn frjóum
jarðvegi, og er allur skógi vaxinn. Áður var hólminn stærri en
minnkaði allverulega, þegar Eiðavatn hækkaði, er Fiskilækur
var virkj,aður og stíflaður 1935.*) Sá lækur rennur úr Eiðavatni
í Lagarfljót.
Skal nú hólma þessum lýst nckkru nánar. Eiðahólmi snýr
frá norðri til suðurs og er allmiklu meiri á þann veg en hinn.
Vatnið umhverfis hann er alldjúpt. Gróðri er þannig varið, að
*) Fljótsdæla saga, 31. kap.
**) Sigfús Sigfússon: ísl. þjóðsögur og sagnir I., bls. 81—85.
*) Skýrsla um Alþýðuskólann á Eiðum 1935—1936, bls. 33—35,