Náttúrufræðingurinn - 1952, Qupperneq 55
Sigurður Þórarinsson:
Skýrsla um
Hið íslenzka náttúrufræðifélag
1947—1949
Á aðalfundi Hins íslenzka náttúrufræðifélags 9. febr. síðastliðinn var sú ákvörðun
tekin, að skiýrslur félagsins frá og með 1947 skyldu birtar í Náttúrufræðingnum, en
hætt við útgáfu skýrslu i því formi, sem verið hefur hingað til. Með því að Náttúru-
gripasafnið er orðið ríkisstofnun, er fallin úr gildi aðalástæðan fyrir þvi að gefa skýrslu
félagsins út sem sérstakt rit, og þótti því einlegast að birta hana í Náttúrufræðingnum,
sem nú er orðinn félagsrit.
Hér fara á eftir sameiginleg skýrsla og reikningar áranna 1947—1949. Er hvort
tveggja nokkuð stytt og samandregið frá því, sem verið hefur. Ætlunin er, að skýrsla og
reikningar áranna 1950—1952 birtist í fyrsta hefti næsta árgangs, og siðan verði skýrslan
birt árlega i fyrsta hefti hvers árgangs.
Félagsmenn
Árið 1947 létust þessir menn:*
Magnús Björnsson, náttúrufræðingur (kjörfélagi), Peter L. Mogensen, lyfsali, Pétur
G. Guðxnundsson, bókbindari og Steinþór Sigurðsson, mag scient. Fimm menn sögðu
sig úr félaginu á árinu, en tiu gengu i það. í árslok 1947 var fjöldi félagsntanna: Heið-
ursfélagar 3, kjörfélagar 2, ævifélagar 118 og ársfélagar 157. Félagsmenn alls 280.
Árið 1948 létust þessir félagsmenn:
Bjarni Jónsson frá Unnarholti, fyrrv. bankastjóri, Guðni Guðjónsson, mag. scient.,
Gunnlaugur Claessen, dr. med., Matthías Einarsson, yfirlæknir, Steingrimur Matthías-
son, læknir, og Sveinbjörn Benediktsson, skrifari. Tveir sögðu sig úr félaginu og tveir
gengu í það. í árslok 1948 var fjöldi félagsmanna: Heiðursfélagar 3, kjörfélagar 2, ævi-
félagar 118 og ársfélagar 151. Félagsmenn alls 274.
Árið 1949 létust þessir félagsmenn:
Gunnlaugur Kristmuudsson, sandgræðslustjóri, Heigi Pjcturss, dr. phil. (heiðursfé-
lagi), Kári Sigurjónsson, fyrrv. alþingismaður, Kristján Bergsson, framkvæmdarstjóri,
og Páll Eggert Ólason, dr. phil. Þrír sögðu sig úr félaginu, en fjórtán gengu í það.
Fimm menn voru kjörnir heiðursfélagar á árinu. í árslok var fjöldi félagsmanna:
Heiðursfélagar 7, kjörfélagar 2, ævifélagar 115 og ársfélagar 157. Félagsmenn alls 281.
Félagatal verður væntanlega birt næsta ár.
* Auk þeirra, sem getið er í skýrslunni fyrir árið 1946, létust á því ári eftirtaldir fé-
lagsmenn: Árni Þorvaldsson, cand mag., Guðmundur Bergsson, fyrrv. póstfulltrúi, Guð-
mundur Hannesson, prófessor, og Guðmundur Jónsson, skipstjóri.