Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1953, Blaðsíða 4

Náttúrufræðingurinn - 1953, Blaðsíða 4
146 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN skýjanna og allt, sem viðkemur sjálfum meistaranum, jafnvel lífs- venjur hans, er túlkað, rætt og lýst í lærðum verkum. Og svo eru aftur hinir, sem segja að hann hafi að vísu verið merkilegur maður á sínum tíma, en „hafi ekki sýnt neina snilligáfu í frumlegri vísinda- legri vinnu“, „hafi haft lítið vit á lágplöntum“ og hafi verið „maður miðaldanna fremur en nútímans11, svo nokkur atriði séu tilfærð úr ummælum í nýútkominni grasafræði.1) Fyrst ber að geta þess, að persónuleiki Linnés hlýtur að hafa verið sérlega heillandi. Út úr myndum af honum á gamals aldri skín skap- gleðin, eða maður ætti kannski að segja ánægjan. Og þetta glaðlyndi kemur fram í öllu, sem hann skrifar, persónulegur stíll hans kemur jafnvel fram í athugasemdum, sem nemendur hans hafa skrifað upp eftir honum. 1 frásögn þætti slíkur stíll umtalsverður á vorum tímum. Það hefur hann auðvitað verið i enn ríkari mæli, borinn saman við skraufþurrt og rembingslegt orðagjálfur 18. aldarinnar. Jafnvel þegar hann er orðinn gamall og sjúkur, og lýsir hörmungum sinum, er eins og skoptónninn í bréfunum brjótist gegnum harmatölumar. Jafnvel þegar hann verður að leika með i remhingshættinum, eins og t. d. í eftirfarandi áletrun (til konungs og drottningar), sem finnst í inn- gangi Species Plantarum, kemur hann sérkennum sínum að: „Ty hör ock skall denne Vetenskaben tafla med alla andra minnesmárken, at göra EDRA MAJESTETERS namn odödehga, dá den inpráglar den i Naturens egen bok, som árligen ányo uplágges . . . “. Linné var álitin stórmenni af samtíð sinni; þetta vissi hann og lagði enga dul á það. En þetta kom svo ljóslega fram og með svo bamslegri ánægju, að það er varla hægt að hneykslast á því, að minnsta kosti ekki nú, þegar svo langt er um liðið. Sagan um grasa- ferðir hans í grennd við Uppsali er einkennandi fyrir hann. Hann lagði þá af stað með allan stúdentahópinn, en í broddi fylkingar vom fánaberar og lúðurþeytarar, og þegar kvölda tók kom öll hers- ingin heim í skrúðgöngu. J>etta fór í taugarnar á mörgum háskóla- mönnum, og yfir því var kvartað, að háskólamun væri óvirðing ger með þessu athæfi. Og auðvitað varð hann að láta í minni pokann. En skemmtilegur kennari hlýtur hann að hafa verið. Auðvitað leiddi þetta til þess, að margir áhugalausir stúdentar flykktust kringum kennarastól hans og skiptir það engu máli, þegar um vísindalegan hróður hans er að ræða. Það getur vel verið, að hann 1) Reed: A short history of the plant sciences. Þó ber að geta þess, að það er margt hlýlegt sagt um Linné i sama verki.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.