Náttúrufræðingurinn - 1956, Blaðsíða 34
96
NÁTTÚ R U FRÆÐINGURINN
1941 stofnuðu þrjú amerísk stórfyrirtæki til samvinnu um málið
við Bridgman og gerðu við hann 5 ára samning. Stríðið dró þó mjög
úr starfi hans við þessar tilraunir, og þegar samningstíminn var út-
runninn hafði árangur ekki náðst. Eitt fyrirtækjanna tók þá upp
þráðinn og lét vinna að þessu verki næstu 5 ár. Margt merkilegt
konr í 1 jós við þessar rannsóknir, aðeins ekki demantar. Var þó farið
upp í liáan hita í stuttan tíma. Erfiðleikanir við að ná háum hita
með þrýstingnum liggja skiljanlega í því, að veggir þrýstirúmsins
verða deigir og þola ekki háan þrýsting. Við þessu varð að finna
ráð, ef takast átti að viðhalda hvoru tveggja, hitanum og þrýstingn-
unr, í lengri tíma, eða meðan demantkrystallar væru að vaxa. Eftir
10 ára tilraunir hafði þetta ekki tekizt. Þá fór ameríska stórfyrir-
tækið General Electric Company (Alm. raffélagið) á stað, og eftir
4 ár náði það hinu torsótta lokamarki, framleiðslu demanta.
Það hefur ekki verið gert kunnugt, hvernig aðferðin er í ein-
stökum atriðum, en það er vitað að tekizt hefur að framleiða sam-
tímis 100 þús loftþyngdir og 2500° C. og viðhalda því ástandi í
þrýstirúminu klukkustundum saman. Það ástand svarar til um 250
km dýpis í jörðinni.
Framleiðslu demantanna má stjórna eftir þessari aðferð, hún er
jafnviss og efnaframleiðsla yfirleitt, þar eð um er að ræða jafnvægis-
skilyrði.
Á hinn bóginn hafa náttúrlegir demantar myndast í jarðskorp-
unni á einstaka stað og þar hafa áðurnefnd liita og þrýstiskilyrði
vafalaust ekki ríkt. Þar hlýtur framleiðslan að Jiafa orðið án jafn-
vægisskilyrða. Sú leið er því enn hugsanleg, að framleiða dem-
anta við auðveldari skilyrði en gert er hjá General Electric.