Náttúrufræðingurinn - 1956, Side 47
SITT AF HVERJU
107
is endurtekin og færð örugg rök að því, að greina má tíglaveikiveiru
tóbaksplöntunnar í tvo liluta, eggjahvítuefni og kirnissýru, og
setja jrá saman al'tur, þannig að veiran sé jalngóð.
IJað hefur ennfremur komið í ljós, að í hinum ýmsu afbrigðum
af tíglaveikiveiru tóbaksplöntunnar er efnasamsetning eggjahvít-
unnar mismunandi eftir því, hvert afbrigðið er, og talið er víst, að
]jað sama sé tilfellið um kirnissýrurnar. Svo mikið er jDegar sannað,
að arfgervi veirunnar ákveðst af kirnissýruhluta hennar, þannig,
að ef sett er saman eggjahvítuhluti frá einu albrigði og kirnissýru-
hluti frá öðru, þá orsakar jjessi „kynblendingur" tíglaveiki með
sömu einkennum og veira sú, er lagði til kirnissýruhlutann.
Augsýnilega er jjað ofmikið sagt, að hér sé um sjálfkviknun lífs
„generatio aequivoca“ að ræða, jjar sem báðir þeir hlutar, sem til
sköpunar veirunnar eru notaðir, eru hlutar af samskonar veiru
og myndaðir af henni. Hitt er annað mál, að stórt spor hefur hér
verið stigið í Jjá átt að leysa gátuna um eðli lífsins. Hér hafa m. a.
enn lengizt rök fyrir |jví, sem lengi hefur verið álitið, að erfða-
einingarnar eða konin í litningum frumukjarnanna séu sambönd af
kirnissýrum.
Sigurður Pétursson.
Hvers vegna laufin falla.
Þegar laufin taka að falla af trjám og runnum, teljum við, sem
búum utan hitabeltisins, að haustið sé að nálgast. í okkar augum
er lauffallið svo fast bundið þessari árstíð, að við mundum líta á
það sem óeðlilegt eða sjúklegt, ef planta felldi lauf á öðrum tímum
árs. Lauffall á öðrum tíma árs en á haustin á sér þó vissulega stað.
í hitabeltinu eru laufin að falla allt árið, og í tempruðu beltunum
má segja,að þau séu að falla allt sumarið, eða að minnst kosti síð-
ari hluta þess, þó að lauffallið sé þá oftast. í svo smáum stíl, að ekki
er tekið eftir jjví fyrr en á haustin. Eðli plantnanna er yfirleitt það
að fella elztu laufin, þegar hin yngri vaxa, en lögmál jjetta kemur
misjafnlega vel í ljós eftir því, liver plantan er og í livernig lofts-
lagi hún vex.
En hvað veldur jjví, að laufin falla? Þetta hefur mikið verið