Náttúrufræðingurinn - 1966, Blaðsíða 16
10
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
að leiðrétta fyrir hann smáskekkjur um staðfræði og örnefni, sem
enn voru í uppkastinu. En White var ófáanlegur til þess vegna
þess, að „mér varð ljóst, að þú hafðir áður komizt að flestum og
ef til vill öllum þeim sörnu niðurstöðum, sem ég komst að, og
öðrum, sem ekki höfðu runnið upp fyrir mér.“ (Úr bréfi frá
White, dags. 24. sept. 1952). En auk þess var White vel kunnugt
um rannsóknir og niðurstöður Mathews í British Colunrbia, og
mun hann því einnig af þeim ástæðum ekki hafa talið sína niður-
stöðu til neinnar nýjungar. White gaf mér uppkastið að ritgerð
sinni, „Origin of Some Palagonite Mountains of Iceland — A
Summary Outline" (5 vélr. bls. og 3 kort), og er hún enn óbirt í
mínum fórum.
Svo mun farið flestum fræðimönnum, að þeim er annt um þær
skýringar á fyrirbærum, sem þeir lrafa fundið sjálfir, og fagna
hverri nýrri stoð, sem undir þær renna. Og víst er um það, að
nokkuð hefur lyfzt á mér brúnin i hvert skipti, er ég hef orðið
var stuðnings eða fylgisaukningar við stapakenninguna. Samt þurfti
meira til, að ég sannfærðist um, að hún væri rétt. Fram yfir 1960
hef ég hvergi í ræðu né riti árætt að halda fram jressari kenningu
öðruvísi en sem sennilegri tilgátu, ósannaðri (Guðm. Kj. 1943, 1956,
1957,1960 og 1961).
En nú virðist mér svo komið, að flestir jarðfræðingar, sem nokkuð
að ráði hafa fjallað um móbergssvæði íslands, aðhyllist stapakenn-
inguna öðrum skýringum fremur. Má þar til nefna Sigurð Þórarins-
son (1961) og Þorleif F.inarsson (1960), sem hafa báðir lýst fylgi
sínu opinberlega.
Mótbárur.
Trausti Einarsson hel'ur einn, svo að ég viti, breyft andmælum.
í ritgerð urn Tjörnes o. fl. 1958 telur hann stapakenninguna „pro-
blematic from an energetic point of view“ og virðist með þeim
orðum draga í efa, að gos undir jökli hafi orku til að bræða þá
hvelfingu eða geil í jökulísinn, sem stapakenningin gerir ráð fyrir.
Síðan klykkir hann út: „Sá sem jretta ritar telur þessa tilgátu mjög
ósennilega" (Trausti Einarsson 1958, bls. 43, neðanmáls).
Þessu er jtví til að svara, að reikningslega nægir hitaorka gosefn-
anna til að bræða um nífalt rúmmál þeirra af jökulís, ef talið er,