Náttúrufræðingurinn - 1966, Blaðsíða 48
42
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
er til í áðurnefndri grein minni, að steinboginn yfir Ófærufossi
neðri sé úr hrauni ofan af Eldgjárbarmi, sem sigið hafi niður, en
áin svo grafið sig undir. Framhald blágrýtislags þess, sem myndar
steinbogann, er að finna í vegg gjárinnar sunnan Ófæru. Er margt
skemmtilegt um jarðlagaskipan þarna við fossana, en ekki mun
það rætt frekar að sinni.
III. Hvaðan mundi vera sá stóri steinn?
Fyrir nokkrum árum hringdi í mig húsgagnasmíðameistari,
Kristjón Ólafsson að nafni, og bað mig að líta á stein stóran, sem
hann hafði sótt úr fjöru norður á Snæfellsnesi. Ég fór og leit á stein-
inn, en af ýmsum ástæðum varð ekki úr því, að ég skoðaði hann
nánar, fyrr en nú í september síðastliðnum, er ég fór og tók mynd
af honum, þar sem hann stóð í húsgarði Kristjóns að Langholtsvegi
55. Hér gefur að líta rnynd af þessum steini (6. mynd), sem er
ekkert smásmíði. Hæð hans er 70 cm, mesta breidd 63 crn og mesta
þykkt 42 cm.
í steini þessum er djúpberg, grófkristallað, aðallega grátt granít,
sem orðið hefur fyrir miklum þrýstingi, svo jaðrar við gneismyndun.
Mun steinninn því hafa lent í einhverri þeirra jarðbyltinga, sem
valda myndun fellingafjalla. Ofan til á steininum er nær lárétt
band, mun dekkra en gráa granítið, og gneismyndunin þar lengra
komin. Eftir að þessi gneismyndun átti sér stað, hefur bergið mis-
gengið á ýmsa vegu, og má sjá á myndinni, að clökka bandið er
misgengið á þremur stöðum. Sést þetta þó betur á bakhlið steinsins.
Þá bggja og um þennan stein 3—5 cm breið bönd úr grófkornuðu,
rauðbleiku graníti og er það kalífeldspat (ortoklasi, sem gefur því
litinn. Fylgja a. m. k. sum misgengin Jressum böndum, en sjálf
skerast þau á nokkrum stöðum í steininum.
Hann á J>ví langa og merkilega sögu að baki, Jressi steinn. Lík-
lega er hann mörg hundruð milljón ára. Og síðast í þeirri sögu
skeði það, að hann lenti upp í fjöru á norðanverðu Snæfellsnesi,
nánar tiltekið norður undan bænum Búlandshöfða (= Hiifða), en
þar sá Kristjón hann fyrst árið 1903. Um 1940 er hann enn á
sama stað og þá hálfur á kafi innan um annað grjót. 1945 hafði
hann borizt eitthvað til og stóð Jrá á hreinni klöpp.