Náttúrufræðingurinn - 1966, Qupperneq 29
NÁTTÚRUFRÆÐINGURIN N
23
fyrirbæri og þegar er frá sagt. En það var helzt til nýjunga, að á
skipinu varð vart eins konar öskufalls. Askan var gróf og ákoma
hennar líkust haglhreytingi. Ekki gat hún átt sér annan uppruna
en gervigosin við ströndina.
Hinn 10. des. 1964 horfði ég á glóandi foss í fremur litlum
hraunlæk, sem féil í sjóinn fram af bergi á suðausturströnd Surts-
eyjar. Eftir langa bið aðeins um 10—15 m frá hraunfossinum sá
ég nokkrum sinnum smásteina kastast upp úr sjónum fast neðan
við fossinn. Þeir fóru í mesta lagi 5—10 m í loft upp. Enginn þeirra
glóði, enda var bjartur dagur, en einn, sem var á stærð við sauðar-
völu og féll niður í fjöruna rétt við fætur mér, reyndist brenn-
heitur, og sauð snöggvast upp af honum, er ég sparkaði honum
í poll. Sprengingar í hrauninu hljóta að hafa valdið þessu grjót-
kasti, en ekki gat ég greint, að þeim fylgdu neinir vatnsstrókar. Ef
til vill voru slíkir strókar ógreinilegir vegna þess, að þetta fór fram
í allmiklu brimi.
Gos í jökli og gos í sjó.
Raunar fæst engin vissa um berggerð Surtseyjar undir sjávar-
máli af athugunum eins og þeim, sem hér var frá sagt. En þó eru
þær nokkur vísbending um, að það hraun, sem fossaði eða hrundi
ofan hina bröttu brekku neðansjávar og tættist auk þess sundur af
sprengingum í fallinu, hafi tekið á sig nokkura aðra mynd en hitt,
sem storknaði í dyngju ofan sjávarmáls. Ef nánar skal leiða getum
að berggerðinni í undirstöðu Surtseyjar, þá er ekki úr vegi að huga
að samsvarandi hluta hinna öldnu „hálfsystkina" hennar, þ. e. mó-
bergsfjallanna: stapa og hryggja. Það er að vísu ölugur aktúalismi
að leita í gömlum myndunum skýringa á nýorðnum, en þar er nú
helzt að að búa, unz undirlag hraundyngjunnar í Surtsey og sjávar-
botninn fram undan hefur verið kannaður með borun, köfun og
töku margra og stórra sýnishorna.
Hm gerð móbergsljalla er mér bezt kunnugt á Landmannaafrétti
og Tungnáröræfum. Ebn mestan hluta þess svæðis eru öll fjöll hrygg-
ir, en stapa vantar, og þau eru að kalla eingöngu úr móbergi og
bólstrabergi. Sum eru aðeins úr annarri tegundinni. En þar sem
báðar fara saman í einu fjalli, er afstaðan undantekningarlítið sú,
að það skiptist í tvær hæðir eftir bergtegundum: bólstraberg undir,