Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1966, Side 91

Náttúrufræðingurinn - 1966, Side 91
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 85 hrauninu. Hér mun hafa verið um kísilgúr að ræða, en auðvelt er að villast á þessu tvennu ef ekki er vel að gáð. Samkvæmt niðurstöðum Þorgeirs verð ég að breyta tölum þeim, sem ég á sínum tíma birti um flatarmál og lengd Laxárhrauna. Sé skoðun Þorgeirs rétt, sem ég sé enga ástæðu til að efa, mælist mér lengd Laxárhrauns yngra vera 63 km, ílatarmál þess um 220 km2 og rúmmál má áætla 2 til 3 km3. Laxárhraun eldra er þá rösklega 70 km langt og flatarmál þess um 300 km2, en rúmmál líklega nálægt 4 km3. Eftir sem áður mun það mega teljast næst lengsta dyngju- hraun hérlendis, en lengsta dyngjuhraun á íslandi og í veröldinni allri er Bárðardalshraun, komið úr Trölladyngju, og a.m.k. 105 km langt. Lengsta hraun á landinu er, svo sem flestum mun kunnugt, Þjórsárhraunið stóra, sem samkv. rannsóknum Guðmundar Kjart- anssonar er a. m. k. 130 km langt og um 770 km2 að flatarmáli. Aldur þess er um 8000 ár og líklegt að Bárðardalshraunið geti verið svipaðs aldurs. í ritgerð minni um Laxárhraun benti ég á, að það væri miklu eldra en Hekluaskan H4 og gizkaði á aldurinn 6500 ár. Sumarið 1952 fann ég Heklulagið Hs ofan á hrauninu í sniði, sem ég gróf 10 km sunnan við Fosshól, en öskulagið Hs er um 6600 ára, og þar eð mold- arlag, 15 cm þykkt, var milli þess og hraunsins, er aldur hraunsins vart minni en 8000 ár. Ýmislegt í ritgerð Þorgeirs þarfnast nánari athugunar og eðlilega orkar eitthvað tvímælis. Mér er og kunnugt um, að Þorgeir kann frá fleiru forvitnilegu að segja um jarðfræði héraðs síns en rúm var fyrir í ritgerð hans. En þessar línur mínar eru ritaðar fyrst og fremst í þeim tilgangi að vekja athygli á þessari merku ritgerð og votta Þorgeiri þakkir fyrir hana. Það er gott til þess að vita, að enn eru ekki úr sög- unni þeir athugulu og glöggskyggnu bændur, sem löngum hafa lagt drjúgan skerf til þekkingarauka í jarðfræði okkar lands. Enn geta íslenzkir atvinnujarðfræðingar sitt hvað af slíkum mönnum lært. Sigurður Þórarinsson. Athugasemd. Fins og upphai' þessarar greinar ber með sér, hefur liún beðið birtingar alllengi. Ritstj.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.