Náttúrufræðingurinn - 1968, Page 36
30
NÁTTÚRUFRÆÐ I NGURI NN
eggjaræninginn. Fundu leiðangursmenn beinagrind af eðlunni yfir
lireiðri frumhyrningsins. Sennilega hefur sandbylur orðið þjófnum
að bana, þegar hann var í þann veginn að innbyrða eggin.
Beinagrindur af svo nefndum nefeðlum (Corythosaurus) liafa
fundizt í Norður-Ameríku, í Síberíu og í Kína í jarðlögum, sem
eru til orðin seint á Krítartímanum. Nafn sitt liafa eðlur þessar
fengið af því, að skoltarnir á þeim eru teygðir fram í eins konar
nef, ekki ósvipuðu andarnefi. Margar tegundanna voru vatnadýr
og höfðu sundfit á milli tánna. Nokkrar þeirra voru með stóran
kamb ofan á hausnum. Glæsilegasti fulltrúi nefeðlanna var andar-
eðlan (Trachodon). Hún var um 10 metrar á lengd og 4 metrar
á hæð — allra myndarlegasta önd það! Goggurinn var tenntur og
stóðu tennurnar í þéttum röðum, allt að 2 þúsund talsins. Aftur-
fæturnir voru mun stærri og sterklegri en framfæturnir, og hefur
eðlan sennilega notað þá mest til gangs. Hún lifði á safaríkum
vatnajurtum, enda haldið sig mest í vatni. Andareðlur hafa ein-
göngu lundizt í krítarlögum Norður-Ameríku.
Á rniðöld jarðar hafa lifað allmargar tegundir af eðlum, sem
voru kjötætur, og áttu þær aðallega heima í sjó, þó sennilega á
grunnsævi. Flestar voru skepnur þessar illvígar og lifðu á ránum,
enda hafa þær verið nefndar ráneðlur. Samtímis andareðlunni var
uppi ein hin ægilegasta ráneðla jarðsögunnar: Tyrannosaurus.
Eðla þessi var um 15 rnetrar á lengd og 5 metrar á hæð. Hausinn
var einn metri á lengd, og ginið afarvítt með 15 cm löngum tönn-
um í tveim röðum. Afturfæturnir voru afar sterklegir, og á þeirn
gekk dýrið hálfupprétt, því að framlimir þess voru svo smáir, að
þeir komu að litlu haldi. Rófan var löng og aflmikil. Tvær heil-
5. mynd. Hvaleðla (beinagrind).