Náttúrufræðingurinn - 1971, Qupperneq 26
230
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
ofanverðan Gluggafoss. En svo hefur ekki orðið, heldur mun hafa
teppzt í þau neðarlega, líkfega af stórgrýti, því að nú kemur mestur
hluti árinnar út úr efsta glugganum og fellur alla leið þaðan utan
á bergþilinu. Ekki eru göngin þó afveg stífluð, því að sjá má í
gegnum fossinn, þegar lítið er í ánni, hvar vatnið spýtist út um
neðsta gluggann. Af bergþilinu, sem áður var framan við fossinn,
er aðeins efsta haftið enn yfir ánni. Það er nú allra snotrasti stein-
bogi. Hann er laust neðan við blágrýtislagið í fossbrúninni og
allur úr molabergi. Hefur mér virzt hann orðinn mun mjórri en
fyrir Heklugosið (7. mynd). Þegar meðalvatn er í Merkjá, fer lítil
sytra úr henni fram hjá steinboganum við vesturenda lians.
Steinbogar i Hreppum
Að lokum skal getið tveggja lítilla steinboga á svo litlum vatns-
föllum, að öllu fremur mega teljast lækir en ár. En þegar þeir eru
taldir, hef ég engum sleppt af þeim steinbogum, sem ég man til
að hafa augum litið.
Annar þessara steinboga er á Þverá, sem rennur í Stóru-Laxá
skammt fyrir innan Laxárdaf í Gnúpverjahreppi. Hann er lágt
og mjótt haft — ef ég man rétt, úr blágrýti — milli tveggja skessu-
katla og lítið gat á, sem öll áin fer í gegnum. Efri skessuketillinn
er hylur undir allháum fossi. Hægt er að ganga bogann yfir ána,
en raunar jafnauðvelt að stökkva eða stikla yfir hana víðast annars
staðar. Þarna sá ég steinboga fyrsta sinni á ævinni, var þá naumast
af barnsaldri og þótti mikið til koma. Síðan hef ég ekki átt leið
að honum.
Um hinn steinbogann vissi ég ekki fyrr en ég var langt kom-
inn að taka saman þessa grein, og erum við þó sveitungar að upp-
runa. Hann er á Stekkatúnslæk, sem rennur í Hvítá rétt innan
við Jaðar, sem er efsti bær við hana í Hrunamannahreppi. Það
var Sigurjón Rist vatnamælingamaður, sem fvrstur sagði mér af
þessum steinboga, en Davíð Guðnason frá Jaðri fylgdi mér á stað-
inn.
Við mynni Stekkatúnslækjar er Hvítá í grunnu og víðu gljúfri,
og kemur lækurinn nú í h'tilli gilskoru þvert í hana. Farvegir
beggja eru grafnir í fornlegt blágrýtisbrotaberg, sem er traustlega
lírnt og á köflum nokkurn veginn heilleg blágrýtissteypa. Stein-