Náttúrufræðingurinn - 1978, Síða 30
Unnsteinn Stefánsson og Björn Jóhannesson:
Miklavatn í Fljótum
Inngangur
Miklavatn í Fljótum er allstórt
stöðuvatn með afrennsli til sjávar um
þröngan ós (1. mynd). Silungsveiði er
talsverð í vatninu, og um það gengur
lax í Fljótaá. Vitað er, að áður fyrr
gekk sjávarfiskur einnig í vatnið um
ós þess, bæði skarkoli og þorskur, og
auk þess ufsi og síld. Að sögn kunn-
ugra virtust kolinn, þorskurinn og
ufsinn þrífast vel í vatninu, en síldin
verr. Þessar tegundir, að síldinni und-
anskilinni, voru oft veiddar í net
undir ís á veturna með undirdrætti,
en slíkar veiðar hafa ekki verið reynd-
ar síðustu áratugina. Koli hefur þó
af og til verið veiddur í lagnet að
sumrinu, en hin síðari ár hefur afli
verið rýr og matargæði koians þótt
léleg. Sem dæmi um síldveiði í Mikla-
vatni má nefna, að 12. júlí 1950 veidd-
ust 30 síldar í dráttarnet undan Illuga-
stöðuni, sem er nálægt þeim enda
vatnsins, sem fjærstur er sjó. Einnig
fékkst þá eitthvað af skarkola og einn
þorskur. Síldin var rannsökuð á rann-
sóknastofu Fiskideildar á Siglufirði
og mældist frá 27—34 cm að lengd. í
dagbók rannsóknastofunnar frá seinni
hluta júlí 1950 má einnig lesa þessa
athugasemd: „Síðast liðin 7—8 ár hef-
ur síld veið/.t í vatninu af og til.“
Þessar upplýsingar bentu til þess,
að saltur sjór hafi gengið langt inn í
vatnið um ósinn. Það þótti því fróð-
legt að kanna, livort slíkrar sjávar-
blöndunar gætti enn i vatninu og þá
með hverjum hætti.
Forrannsókn var framkvæmd sum-
arið 1976, en vegna óhagstæðs veðurs
var gagnasöfnun mjög takmörkuð.
Niðurstöður voru þó athyglisverðar.
Þær bentu til þess, að milli 5 og 10
metra dýpis í vatninu séu sköip skil
milli ferskvatns í efra lagi og sjávar-
blöndu í neðra lagi, og að öllum lík-
indum sé neðra lagið súrefnissnautt.
Það virtist því ólíklegt, að lifvænleg
skilyrði væru fyrir fiska og önnur dýr
neðan a. m. k. 10 metra dýpis í Mikla-
1. mynd. Dýptarkort af Miklavatni,
teiknað eftir korti, sem Vatnamælingar
Orkustofnnnar gerffu á grundvelli dýptar-
mælinga sumarið 1964. Örnefni eru sam-
kvæmt upplýsingum Jóns K. Olafssonar,
Haganesvík. Athuganastaðir í júní 1977
eru merktir á kortið. — A bathymetrical
map of Lake Miklavatn, redrawn afler
the map prepared by tlie Hydrological
Division of the Nalioncd Energy Authority
in 1964. Topographical names according
to information from Jón K. Olafsson,
Haganesvik. Stations occupied in June
1977 ure indicated.
Náttúrufræðingurinn, 48 (1—2), 1978
24