Náttúrufræðingurinn - 1978, Blaðsíða 69
10 mm
1. mynd. Vorflugan Limnephilus picturatus d séð að ofan með útbreidda vængi og
frá hlið sitjandi.
Vorflugulirfur skipta miklu máli í
vistkerfum vatna, og eru étnar í mikl-
um mæli af silungum og fugium.
Skýringar
Líffærin sem notuð eru við grein-
ingar eru venjulega sýnd með mynd-
um í lyklinum, en þörf er að skýra
nánar eftirtalin atriði.
Æðakerfi vængja er notað að
nokkru leyti í Jressum greiningarlykli,
og í mörgum erlendum lyklum er það
mikið notað, en áður fyrr tíðkaðist að
setja vorflugueintök á prjóna og
breiða úr vængjunum. Nafngiftir á
vængæðum eru einfaldar (3. mynd f).
Fremri brún vængja er talin lil æða,
og er nefnd costa (C). Samsíða henni
er æð sem nefnd er subcosta (Sc).
Næsta æð fyrir aftati kemur frá fest-
ingu vængsins við bolinn, og er nefnd
radius (R), og skiptist hún í tvær
greinar nálægt búknum. Frernri grein-
in er sýnd á myndunum sem R, en
aftari greinin (radial sector) skiptist
aftur í tvær greinar, og hvor þeirra
svo í tvær nálægt vængenda (Rs 1,
Rs 2, Rs 3 og Rs 4). Geirarnir sem
radius og greinar radial sectors mynda
;í vængendum eru sýndir með tölu-
stöfum á myndunum (R 1, R 2 o. s.
frv.) (4. rnynd a, b). Ef þveræð liggur
milli aðalgreina Rs og myndar reit,
er sá reitur nefndur discoidal reitur
(dc) (3. rnynd f, 1, 4. mynd a, b). Aðrar
æðar á vængjum eru ekki notaðar við
greiningu á íslensku tegundunum.
Fjöldi spora á leggjum (tibiae) fót-
anna eru notaðir til að aðskilja teg-
undir. Þeir eru rauðbrúnir á lit og
um hehningi lengri en gaddarnir, sem
eru svartir (2. mynd). Þegar sagt er í
greiningarlyklinum „sporar 244“, þýð-
ir það að 2 sporar séu á framlegg, 4
á miðlegg og 4 á afturlegg.
Afturbolur skiptist í 10 liði. Fyrstu
8 liðirnir á afturbol karlflugna eru
mjög svipaðir í útliti, og skipta litlu
ntáli við aðgreiningu tegundanna. Ní-
undi liður er venjulega mjór kítín-
hringur, sem er ekki aðskilinn í bak-
skjöld (tergum) og kviðskjöld (stern-
um). Tíundi liður er meira breyttur
en 9. liður og myndar ytri hluta
kynfæranna. Ekki er alltaf ljóst að
urn lið er að ræða. Hann ber pör af
63