Náttúrufræðingurinn - 1978, Side 84
Reykjavíkurflugvelli fundust skeljar,
sem voru aldursgreindar og reyndust
þær vera 9.940 ± 260 ára, 10.450 ±
160 ára, 10.230 ± 190 ára og 10.310 ±
260 ára (Guðm. Kjartansson 1964).
Auk þessa hefur verið hægt að segja
nokkuð til um aldur með hjálp ösku-
laga, sbr. Nákuðungslögin svonefndu,
sem finnast við norðanverðan Hrúta-
fjörð, en aldur þeirra er talinn vera
um 5.000 ár (Sig. Þórarinsson 1955).
Af framangreindu kemur í ljós, að
aldursgreiningarnar má flokka í fjóra
hópa. I kringum 12.8000-12.100 ár
(sbr. Álftanesstig), um 11.600 ár (Alle-
röd, Saurbæjarstig), í kringum 10.400
—7.700 ár (frá lokum Búðastigs) og
um 5.000 ár (Nákuðungslög).
Allar þær tegundir, sem finnast frá
síðjökultíma, lifa enn við strendur
landsins nema jökultoddan (Port-
landia arctica), sem finnst í lögunum
í Saurbæ í Dalasýslu. Aftur á móti
hefur útbreiðsla ýmissa tegunda
breyst, t. d. er fagurskel (Cardium
elegantulum), sem finnst í malarlög-
um frá síðjökultíma á norðanverðu
Snæfellsnesi, aðeins þekkt við Norður-
land í dag.
Hér á eftir kemur upptalning fund-
arstaða skelja, sem til eru á Náttúru-
fræðistoínun íslands og merktir eru
með hringjum á kortunum:
1. Hólmsberg, Keflavík, Gullbringu-
sýsla.
2. Rauðhóll, sunnan við Hafnarfjörð,
Gullbringusýsla.
2. mynd. Fundarstaðir síðjökultíma skelja á Suðvesturlandi. Skýringar með korti í
texta. — Localities where postglacial fossil shells have been found in Southwest Ice-
land. For further explanation see text.
78